Spegillinn

AstraZeneca á netinu?


Listen Later

Ekkert má út af bregða til þess að stjórnvöld geti staðið við áætlun sína um afnám takmarkana innanlands vegna kórónuveirufaraldursins í lok júní. Þetta er mat Magnúsar Gottfreðssonar smitsjúkdómalæknis og yfirlæknis á Landspítala.
Óvenju mörg börn eru í umsjá COVID göngudeildar Landspítalans. Veikindi þeirra eru ekki mjög alvarleg og ástandið því viðráðanlegt.
Eldfjallafræðingur segir að aukin sprengivirkni í eldgosinu við Fagradalsfjall gefi engar frekari vísbendingar um hvort búast megi við því að áfram gjósi fram á sumar.
Þingnefnd í Brasilíu hefur hafið rannsókn á aðgerðaleysi forseta landsins vegna COVID-19 faraldursins. Sjúkdómurinn hefur orðið hátt í 400 þúsund landsmönnum að bana.
Í sumar á að liggja fyrir hvort hafnar verða formlegar viðræður um sameinginu Svalbarðshrepps og Langanesbyggðar. Formaður undirbúningsnefndar segir margt skýrast á allra næstu vikum.
Fjármálaráðherra segir að áætlaður kostnaður ríkisins vegna styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki sé um fjórir komma tveir milljarðar króna.
Ef mikill afgangur verður af bóluefni AstraZeneca kemur til greina að bjóða fólki að taka upplýst ákvörðun á netinu um hvort það vilji fá þetta bóluefni. Verið er að skoða hvort körlum yngri en 60 ára verður boðið upp á AstraZeneca bóluefnið. Nú miðast bólusetningin við 60 ára og eldri. Arnar Páll Hauksson talar við Þórólf Guðnason.
Teymisstjóri Bjarkarhlíðar, sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, vill að skimað verði reglulega fyrir ofbeldi meðal aldraðs fólks á vegum heimaþjónustu eða heilsugæslu. Rannsóknir benda til þess að ofbeldi gagnvart eldri borgurum sé dulinn vandi og aðstæður fólks geta verið flóknar. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Rögnu Björgu Guðbrandsdóttur.
Tengsl David Camerons fyrrum forsætisráðherra við nú gjaldþrota fjármálafyrirtæki drógu athyglina að meintum spillingarmálum tengdum Boris Johnson forsætisráðherra. Eftir að forsætisráðherra ræddi við ritstjóra bak við tjöldin til að benda á Dominic Cummings, fyrrum ráðgjafa Johnsons, sem uppsprettu leka, kom Cummings fram á föstudaginn með sína sögu um nokkur mál. Í kjölfarið brast flóðbylgja sögusagna um forsætisráðherra, sem snúast um dómgreind hans eða, eins og gagnrýnendur hans segja, dómgreindarskort. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners