Spegillinn

Átakið Hefjum störf, UArtic ráðstefnan


Listen Later

Spegillinn 14.5.2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Nokkur dæmi eru um að smit hafi greinst hjá bólusettu fólki hérlendis, segir sóttvarnalæknir. Ekki sé komið að því að bólusettir geti verið grímulausir. Hann vonar að verði hægt að slaka á grímunotkun í júní, júlí þegar 60 eða 70 prósent hafa verið bólusett. Rætt er við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni
Helmingur fullorðinna Íslendinga hefur fengið að minnsta kosti fyrri bólusetningu við COVID-19 og þar af eru 22 prósent fullbólusett, eða 65 þúsund manns. Rætt við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að #metoo-bylgjan sem nú er í gangi sýni að þörf sé á frekari aðgerðum til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Hún kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun samantekt um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur þegar gripið til á yfirstandandi kjörtímabili. Rætt við Katrínu Jakobsdóttur
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur ríkar þjóðir heimsins til að hætta að bólusetja börn gegn COVID-19 og gefa bóluefnið frekar þeim sem minna mega sín efnahagslega.
Aflaheimildir sem ætlaðar eru til strandveiða í ár duga ekki til að ljúka tímabilinu segir talsmaður smábátaeigenda. Sjöhundruð smábátar verða við strandveiðar í sumar Rætt við Örn Pálsson. taldmann smábátaeigenda
Lengra efni:
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að störfum rigni inn til stofnunarinnar vegna átaksins Hefjum störf. Tæplega 1700 manns hafa verið ráðnir frá því að það hóst í maprí. Nú erum um 6600 störf í boði. Arnar Páll Hauksson ræddi við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar
Halla Hrund Logadóttir, einn af stofnendum og stjórnendum Miðstöðvar norðurslóða við Harvard-háskóla og verðandi orkumálastjóri, bindur vonir við fund Norðurskautsráðsins í næstu viku. Hún telur að ráðstefna háskóla norðurslóða gefi tóninn eftir COVID-19 og verði vonandi sá stökkpallur háskólasamfélagsins inn í aukna samvinnu sem mikil þörf sé fyrir. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hana um hraðar loftslagsbreytingar á norðurslóðum og fund utanríkisráðherra Norðurskautsráðsins.
Einu sinni reyndu stjórnmálamenn ákaft að komast í fjölmiðla. Nú er öldin önnur. Breskir stjórnmálamenn sneiða hjá ákveðnum fréttaþáttum og fréttamönnum vegna þess að þeir vilja sjálfir stýra hvernig boðskapnum er komið á framfæri. Það tekst þó ekki alltaf. Sigrún Davíðsdóttir segir frá
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners