Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?
    Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír.
    Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.
    54 min
  • Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill
    Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir Twain, Milljón punda seðillinn í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Það er Sverrir Kristinsson sem gefur út en hann hefur reglulega gefið út gamlar merkilegar bækur í stílhreinum útgáfum frá 2011. Þetta er þó ekki fyrsta þýðing þessarar sögu, sem er einskonar dæmisaga og samfélagsgagnrýni sem kom fyrst út 1893. Við ræðum við Guðna Kolbeinsson þýðanda.
    Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar. Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu. Við fjöllum þessa nýju útgáfu í þættinum og ræðum við Sólveigu Ástu Sigurðardóttur sem ritar eftirmála.
    Viðmælendur: Guðni Kolbeinsson og Sólveig Ásta Sigurðardóttir.
    51 min
  • Fjöruverðlaunin og íslensku þýðingaverðlaunin
    Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar.
    Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.
    52 min
  • Bækur verða bíó: Röskun og Hamnet
    Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu að kvikmynd á svipuðum tíma. Það eru bækurnar Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019 og varð að kvikmynd nú fyrir skemmstu. Og skáldsagan Hamnet eftir írska rithöfundinn Maggie O’Farrell sem kom út 2020 og varð að kvikmynd í lok síðasta árs.
    Viðmælendur: Íris Ösp Ingjaldsdóttir, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir og Sunna Dís Másdóttir.
    53 min
  • Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir
    Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var hann lengi vel með her skósveina sem skrifuðu fyrir hann og með honum.
    Saga hans er líka svo áhugaverð, hann fæddist skömmu eftir aldamótin 1800 þegar allt var á stjórnmálalegum suðupunkti í Frakklandi eftir byltinguna; Napóleon, aftur yfir í konung, svo aftur Napóleon. Faðir Dumas barðist í byltingunni og var síðar virtur hershöfðingi í franska hernum. Hann fæddist í frönsku nýlendunni Santki Dominík í Vestur-Indíum, þar sem nú er Haítí. Faðir hans var franskur aðalsmaður, hvítur þrælahaldari en móðir hans var þræll hans, svört kona af óþekktum afrískum uppruna. Alexandre Dumas ólst upp föðurlaus og í sárafátækt hjá móður sinni og varð svo einn afkastamesti og frægasti rithöfundur Frakka fyrr og siðar. Faðirinn sem hann fékk ekki að kynnast var samt goðsögn í augum Dumas og var hann innblástur að mörgum af persónunum í bókunum. Bækur Dumas, sem sumar fara að nálgast 200 ára aldur, eru enn þá gríðarlega vinsælar og mikið þýddar og Dumas er á topplista yfir mest þýddu höfunda sögunnar. Sögurnar hafa líka orðið reglulega innblástur fyrir bíó, sjónvarp og leikhús. Ein þessara bóka, Greifinn af Monte Cristo, verður einna mest í brennidepli í dag.
    Viðmælendur: Ragnhildur Helgadóttir, Sigurjón Bergþór Daðason og Guðrún Kristinsdóttir.
    53 min
  • Kæri fáviti og Ursula K. Le Guin
    Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril að baki og braut blað í því að færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um virðingarflokk. Rætt verður við aðdáanda bóka Le Guin, Þórhall Auð Helgason óperusöngvara sem hefur lesið verkin sum hver oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verða einnig nokkur viðtalsbrot úr innslagi í Lestinni á sínum tíma, stuttu eftir að Le Guin lést.
    Í síðari hluta þáttar beinum við sjónum okkar að Frakklandi. Nýjasta bók rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Virginie Despentes, Cher Connard frá 2022 sem nú hefur komið út hjá Benedikt útgáfu og ber titilinn Kæri fáviti. Við hringjum í Kristínu Jónsdóttur sem búsett er í París og ræðum bókina og Despentes. Bækur þessa alræmda franska höfundar hafa aldrei verið þýddar á íslensku áður en þær hafa alltaf vakið gríðarlegt umtal í Frakklandi. Í bókum sínum tekst hún á við viðkvæm efni; vændi, kynferðisofbeldi, fátækt, fíkn og jaðarsetningu. Kæri fáviti er bréfaskáldsaga, gerist að mestu í einkaskilaboðum á instagram og er uppgjör við #metoo og alkahólisma svo fátt eitt sé nefnt.
    Viðmælendur: Þórhallur Auður Helgason, Brynhildur Björnsdóttir, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Kristín Jónsdóttir.
    Lesarar: Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Anna Gyða Sigurgísladóttir.
    51 min
  • Síðustu dagar skeljaskrímslisins og hrakfarir Hemingways
    Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki.
    Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum að skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var að gefa út sína fjórðu skáldsögu, Síðustu dagar skeljaskrímslisins.
    Svo höldum við suður á bóginn til Parísar og Pamplóna og lendum í hrakningum með Ernest Hemingway. 100 ár eru frá því að fyrsta skáldsaga nóbelshöfundarins og hrakfallabálksins bandaríska kom út 1926; The Sun Also Rises eða Og sólin rennur upp. Lilja Sigurðardóttir rithöfundur hefur lengi haft mikinn áhuga á Hemingway og segir frá lygilegri ævi hans.
    Viðmælendur: Steinunn G. Helgadóttir og Lilja Sigurðardóttir.
    53 min
  • Birtíngur horfir á fréttatímann og Öskubuska með slæman endi
    Pistill um skáldsöguna Flesh eftir David Szalay sem hlaut Booker-verðlaunin 2025 og samtal við Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamann og bókmenntarýni um bókina.
    Umfjöllun um Birtíng eftir Voltaire. Bókin sem kom út 1759 er ein frægasta háðsádeila sögunnar um stríð, ofbeldi, misskiptingu og óréttlæti heimsins og á hún stöðugt í samtali við samtímann. Og okkar samtími virðist oft vera fullur af tortímandi öflum, uppgangi fasisma, loftsalgskrísu og stríðsátökum. Er það fréttum að kenna? Eigum við að vera bjartsýn, svartsýn og kannski bara rækta garðinn okkar? Við skoðum hvernig Birtíngur og ferðalag hans um heiminn talar við tímana sem við lifum nú með Ásdísi Rósu Magnúsdóttur prófessor í frönskum bókmenntum við Háskóla Íslands.
    Viðmælendur: Gréta Sigríður Einarsdóttir og Ásdís Rósa Magnúsdóttir.
    Lesari: Halldór Laxness
    Hljóðbrot úr Fréttaannál sjónvarps 2025 og Kastljósi.
    Tónlist: For the damaged Coda - Blonde Redhead, It's a Mad Mad Mad Mad World - The Schirelles, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos.
    55 min
  • Samantekt: Vónbjørt Vang, bókaklúbbar fræga fólksins og flugvallabókmenntir
    Við byrjum á umfjöllun um Vónbjørt Vang ljóðskáldi frá Færeyjum sem hlaut bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Svarta orkídeian. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýðandi og sú sem stýrir fornbókabúðinni Kanínuholan sagði mér frá skáldskap Vónbjørt í haust en von er á íslenskri þýðingu frá Móheiði á sigurbókinni.
    Við hlerum líka bókaklúbba fræga fólksins, það er enginn frægur með frægum nema hann sé með bókaklúbb og nýti hann til góðs og ills. Það eru stundum ekki beint bókmenntahvatar þar á bakvið.
    Í lokin förum við út á flugvöll þar sem er alveg sérstök bókmenning. Hvaða bækur eru í flugvallabókabúðum og hvernig endurspegla flugvellir ástand nútímamannsins? Sjöfn Asare bókmenntafræðingur og rithöfundur fór yfir það með mér síðla sumars.
    52 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners