Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Dulúðin, heimshryggðin
    Tvær nýjar skáldsögur og ein ljóðabók fylla þáttinn í dag. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar voru afhent í vikunni og við ræðum við verðlaunahafann Þórdísi Dröfn Andrésdóttur um sigurbókina, Síðasta sumar lífsins.
    Skáldsögurnar tvær eru fremur ólíkar en eiga þó sitt hvað sameiginlegt, Lausaletur eftir Þórdísi Helgadóttur og Bók vikunnar eftir Snæbjörn Arngrímsson. Þær vísa báðar í sjálfa bókmenninguna, útgáfusögu og prenttæknina og búa báðar yfir sambærilegri dulúð, hinu óræða og stundum draugalega. Og í raun má segja það sama um ljóðabókina, þar sem drungi og heimshryggð hvílir undir lygnu vatni.
    Viðmælendur: Þórdís Dröfn Andrésdóttir, Þórdís Helgadóttir og Snæbjörn Arngrímsson.
    53 min
  • Útreiðartúr um Álftanes og Svört orkídea hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
    Tvær bækur verða í forgrunni hjá okkur í dag, íslensk skáldsaga og færeysk ljóðabók, tvö ólík verk tveggja nágrannaþjóða sem báðar fjalla um flókið samband foreldris og unglings.
    Útreiðartúrinn er ný skáldsaga eftir Rögnu Sigurðardóttur - þetta er virkilega athyglisverð saga sem gerist á nokkrum mismunandi tímum, aðalsagan er í samtímanum en teygir sig líka til síðari hluta 19 aldar. Samtímasagan er um feðgasamband í flækju og vináttu sem ekki er öll þar sem hún er séð og þetta speglast í fortíðinni, gömlu glæpamáli frá 1881. Undirliggjandi eru spurningar um grimmd mannsins, hvort hún búi í okkur öllum, hvort hún erfist og leit að sannleika. Eitthvað sem er alveg jafn flókið hvort sem maður grefur upp 150 ára mál eða rýnir í það sem er að gerast hér og nú. Ragna verður gestur minn í lok þáttar og segir okkur frá lífinu á Álftanesi og hugmyndunum sem urðu kveikjan að þessari bók.
    Færeyingar máttu fagna dátt þegar tilkynnt var um Norðurlandaráðsverðlaunin í ár - Færeyjar fá bæði kvikmynda- og bókmenntaverðlaunin í ár. Bókmenntaverðlaunin hlýtur ljóðabókin Svørt orkidé eftir Vónbjørtu Vang - ljóðabók sem fjallar um móður sem óttast að missa unglingsson sinn, að horfa á hann fullorðnast og feta sínar eigin leiðir – og fer hugsanlega villur vegar. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þekkir vel til þessarar bókar og og höfundarins og vinnur nú að þýðingu ljóðanna á íslensku. Við ræðum við Móheiði á eftir.
    Viðmælendur: Ragna Sigurðardóttir, Árni Matthíasson og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir.
    52 min
  • Vísindi í ljóðum og ljóð í vísindum / Don Juan eftir Byron lávarð
    Hvalbak er önnur ljóðabók Maó Alheimsdóttur. Skáldsaga hennar Veðurfregnir og jarðarfarir vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2024 en hún er fyrsta frumsamda sagan sem kemur út á íslensku eftir höfund sem lærði málið á fullorðinsaldri. Einstök ljóðabók þar sem greina má nýtt og ferskt sjónarhorn á íslenska náttúru og tungu.
    Anna Rós Árnadóttir hefur gefið út sína fyrstu ljóðabók, Fyrir vísindin, þar sem hún yrkir af „vísindalegri nákvæmni“ um tilveruna, um næmni, raunveruleikann og hið yfirskilvitlega. Fyrr á þessu ári hlaut Anna Rós Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Skeljar sem finna má í þessari athyglisverðu ljóðsögu.
    Söguljóðið stóra Don Juan eftir Byron lágvarð var að koma út í fyrsta sinn í heild sinni á íslensku. Byron lauk aldrei við ljóðið áður en hann lést aðeins 36 ára árið 1824 og skrifaði það í sjálfskipaðri útlegð, aðallega í Feneyjum á Ítalíu. Jón Erlendsson var að senda frá sér þýðingu á kviðunum sextán, en hann hlaut íslensku þýðingarverðlaunin í fyrra fyrir þýðinguna á Parardísarmissi eftir John Milton. Guðni Elísson prófessor í almennri bókmenntafræði við HÍ ræðir Byron lávarð og Don Juan í þættinum.
    Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Anna Rós Árnadóttir og Guðni Elísson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    55 min
  • Týndir kettir og furðusagnabylgja á Íslandi
    Byrjum á spjalli við Ægi Þór Jähnke sem var að gefa út sína fyrstu skáldsögu sem kallast Grár köttur, vetrarkvöld.
    Emil Hjörvar Petersen hefur verið í fararbroddi furðusagnahöfunda á Íslandi árum saman. Hann var að senda frá sér sína þrettándu skáldsögu, framtíðarsögu sem kallast Eilífðarvetur. Rætt er við hann og breytt landslag á sviði vísindaskáldskapar og furðusagna hér á landi.
    Nína Ólafsdóttir er nýr höfundur sem gaf út framtíðarskáldsöguna Þú sem ert á jörðu. Við heyrum brot úr viðtali við Nínu úr Víðsjá. Og þá verður líka brot úr viðtali við Árna Matthíasson um Sporbauga eða Orbital eftir Samantha Harvey sem hlaut Booker-verðlaunin í fyrra en íslensk þýðing bókarinnar var að koma út eftir Árna Óskarsson.
    51 min
  • Stuttlisti Booker verðlaunanna og tvö ljóðskáld með ólík verkfæri
    Tvö ljóðskáld með ólíka nálgun á sína ljóðlist eru gestir þáttarins, þau Þórarinn Eldjárn og Sunna Dís Másdóttir. Þórarinn var að gefa út ljóðabókina Jarðtengd norðurljós sem er safn að mestu háttbundinna kvæða í bland við lausort ljóð og örprósa og Sunna Dís var að gefa út formfrjálsa ljóðsögu eða ljóðabálk unninn upp úr persónulegri reynslu sem kallast Postulín.
    Við byrjum úti í heimi því það er alltaf fréttnæmt þegar Booker-verðlaunin virtu nálgast. Búið er að tilkynna hvaða sex bækur ná á stuttlista verðlaunanna í ár. Anna María Björnsdóttir segir betur frá verkunum.
    Viðmælendur: Sunna Dís Másdóttir, Þórarinn Eldjárn og Anna María Björnsdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min
  • Ást, friður og hversdagsleikinn þar á milli
    Immanuel Kant skrifaði heimspekilegu drögin Fyrir eilífum friði árið 1795 og var viðbragð upplýsingarheimspekingsins við rósturtímum og stríðsátökum Evrópu undir lok 18. aldar. Fleiri samtímahugsuðir veltu fyrir sér stríði og friði, hvernig í ósköpunum er hægt að stilla til friðar ef það er hægt yfir höfuð, á hvaða forsendum er það gert og hvernig lítur sá heimur út? Verkið kom út í lok árs 2024 í Lærdómsritröð Hins íslenska bókmenntafélags í þýðingu Egils Arnarsonar með inngangi eftir Emmu Björgu Eyjólfsdóttur sem er gestur þáttarins.
    Við fjöllum líka um örsagnasafnið Dagskammtar eftir Ragnheiði Guðbjargar Hrafnkelsdóttur. Sögurnar tengjast ákveðnum atvikum eða stöðum, sumar eru þankar eða vangaveltur eins og dagbókafærslur og allt hverfist þetta um hversdagsleikann og hvað það þarf stundum lítið til að brjóta hann upp og kveikja á fantasíunni eða minningum. Ráðlagður dagskammtur af örsögum og heimsókn til Ragnheiðar um miðbik þáttar.
    Ástin fiskanna eftir Steinunni Sigurðardóttur kom fyrst út árið 1993 og var að koma út í endurútgáfu í ritröðinni Íslensk klassík hjá Forlaginu. Þetta er stutt bók, nóvella sem hefur haft mikil áhrif, við segjum stuttlega frá henni og heyrum brot úr eldri umræðum og viðtölum.
    Viðmælendur: Emma Björg Eyjólfsdóttir og Ragnheiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    52 min
  • Bókmenntatímarit: Sveppirnir í vistkerfi bókmenntanna?
    Fjölnismenn skrifuðu á 19. öld: Eínginn þarf að furða sig á þessu um tímaritin, því þau eru rödd tímans... Í dag beinum við athygli okkar að bókmenntatímaritum sem hafa komið út á Íslandi svo gott sem frá upphafi almennrar tímaritaútgáfu. Skírnir, elsta tímarit á Íslandi sem enn kemur út, fjallar einum þræði um bókmenntir auk heimspeki, sagnfræði og fleiri svið. Eins og sakir standa nú þegar fjórðungur er liðinn af 21. öld er enn líf og velta í þessum bransa og þótt líftími bókmenntatímarita sé almennt stuttur er mikil gróska og mikilvægi þeirra til að lyfta upp grasrót og ögra ríkjandi hugmyndakerfum er mikið fyrir heilbrigt bókmenntavistkerfi.
    Viðmælendur: Þröstur Helgason, Amanda Líf Fritzdóttir, Þórdís Helgadóttir, Katla Björk Gunnarsdóttir, Þórhallur Runólfsson og Tómas van Oosterhaut.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    54 min
  • Goethe í flugvallabókabúðinni
    Flugvellir eru táknrænn staður á svo margan hátt, undarlegt neysludrifið millibilsástand. Þar er samfélag manna strípað niður í grunneiningar ferðalags, komur og brottfarir og á milli er biðin og neyslan. Við komum, neytum, förum. Ad infinitum. En þar má alltaf finna bókabúð. Flugvallabækur eru sérstök tegund af bókmenntum og oft notað sem níðyrði. Sjöfn Asare bókmenntafræðingur og rithöfundur ræðir fyrirbærið flugvallabækur sem má rekja allt aftur til brautarstöðvareyfara á 19. öld.
    En ferðalangar sem lesa Johann Wolfgang von Goethe á flugvelli eða á almannafæri yfir höfuð yrðu líklegast sakaðir um sviðsettan lestur, performative reading, hvaða skilaboð sendir bókin sem þú lest í almannarýminu á okkar furðulegu símatímum?
    Við förum til Frankfurt í Þýskalandi á heimaslóðir Goethe. Ugla útgáfa gaf út litla vasabók með tveimur stuttum sögum eftir Goethe með aðfararorðum og eftirmála eftir Jón Bjarna Atlason sem jafnframt þýddi aðra söguna, Nóvellu, en Kristján Árnason og Þórarinn Kristjánsson þýddu hina sem kallast Ævintýrið og kom upphaflega út 2001. Jón Bjarni kemur með okkur til Frankfurt hér á eftir og segir okkur betur frá þessari útgáfu og Goethe – hans erindi og vægi í bókmenntum dagsins í dag.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    Viðmælendur: Sjöfn Asare og Jón Bjarni Atlason.
    51 min
  • Timothy Snyder aftur á metsölulistum, Shirley Jackson og Gutenberg-Parenthesis
    Fyrsta mál á dagskrá verður stutt hugleiðing um bók um harðstjórn og lærdóma, mörgum þykir ástand heimsmálanna víðsjárvert og hafi verið í nokkur ár. Draga þurfi fram hliðstæður af sögunni, lexíur í gömlum skruddum. Margir lesendur eru farnir að draga fram dystópískar skáldsögur til að finna samsvörun, það er aukin sala á slíkum bókmenntum síðustu mánuði. Við ætlum að fletta örlítið í einni þeirra bóka sem hafa tekið slíkt hástökk nýverið. Í ljósi nýlegra pólitískra hræringa í Bandaríkjunum hefur bók sagnfræðingsins Timothy Snyder, Um harðstjórn, öðlast nýtt líf á metsölulistum. Hann hefur verið áberandi álitsgjafi um heimsmálin, sér í lagi Úkraínu en hann hefur sérhæft sig í sögu austur Evrópu. Um harðstjórn, sem kom fyrst út árið 2017, fjallar um lærdóma 20. aldar varðandi uppgang harðstjórnar og lýðræðishrun. Hún á sérstakt erindi við samtímann.
    Shirley Jackson, drottning gotneskra hrollvekjubókmennta á 20. öld lést aðreins tæplega fimmtug en var gríðarlega afkastamikill og athyglisverður höfundur. Við fáum til okkar Gunnhildi Jónatansdóttur sem var að þýða skáldsöguna Við höfum alltaf átt heima í kastalanum, We have always lived in the castle sem kom út 1962. Það var allra síðasta útgefna bók Jacksons og af mörgum talin sú besta.
    Í hvaða samhengi er prentöldin samhliða tækniþróun samtímans? Ég ætla að segja frá bók bandaríska fræðimannsins Jeff Jarvis um Gutenberg-svigann sem hugsanlega er að lokast með tilkomu internetsins. Hver er framtíð lesturs? Stefnum við inn í öld munnmæla? Er lesandinn dauður eða var það höfundurinn?
    50 min
  • Sjöleikur Jons Fosse og nokkrar tilnefndar bækur frá Norðurlöndum
    Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru rótgróin menningarstólpi, stærstu og mikilvægustu bókmenntaverðlaun á Norðurlöndum. 14 bækur eru tilnefndar, aðallega ljóð og skáldsögur eins og venjulega en í ár er líka eitt leikrit frá Noregi, sem er nokkuð óvenjulegt. Árni Mattíasson er að spæna í sig tilnefnda bunkann og ætlar að segja mér frá nokkrum verkum í lok þáttarins, við komum við í Danmörku, Svíþjóð, Álandseyjum og Noregi.
    Norski nóbelshöfundurinn Jon Fosse er gjarn á að setja fram völundarhús með sínu vitundarstreymi og endurtekningasama prósa, ljóðum og leikritum. Dimma bókaútgáfa hefur gefið út þónokkuð af verkum Fosse í þýðingum á undanförnum árum. Í fyrra kom út skáldsagan Naustið og ljóðaúrvalið Skýin eru skuggar og nú var að koma ný þýðing, fyrsti hluti stórvirkisins Sjöleikurinn eða Sepotologien I-II. Það er Hjalti Rögnvaldsson sem þýðir en hann hefur þýtt Fosse í yfir 20 ár, hann fékk hann á heilann að eigin sögn. Hjalti er búsettur í Svíþjóð hvaðan hann sendiir þýðingarhandritin handskrifuð til útgefandans, Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar hjá Dimmu en Aðalsteinn sér um að þýða ljóð Fosse. Við heimsækjum Aðalstein á skrifstofuna í síðari hluta þáttar og skoðum handritin, ræðum um Fosse og útgáfu hans og hringjum svo í Hjalta.
    Viðmælendur: Hjalti Rögnvaldsson, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Árni Matthíasson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners