Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Hulduhöfundurinn Akörn
    Það læddist bók inn á sviðið í vikunni; dularfull, stutt skáldsaga sem heitir Páfagaukagarðurinn og hefur valdið bókafólki heilabrotum því höfundurinn, Akörn, er huldumaður. Eintök af bókinni eru fá, nokkrir útvaldir úr bókmenntasenunni fengu senda bók. Þeir fengu nafnlausan Páfagaukagarð í pósti. Og eitt var sent á Skálda bókabúð. Þar er eintakið til sölu fyrir litlar 30 þúsund en verður þó til sýnis í þrjá mánuði þótt það sé búið að selja hana.
    En Hver er Akörn? Skiptir það máli, er ekki höfundurinn dauður og lesandinn á lífi? Er þetta allt úthugsað háð sem beinist að fámennri menningarelítu eða er þetta markaðsstönt? Hvernig koma Mexíkó, ljóð Gyrðis Elíassonar og Alvotech við sögu? Við Tómas Ævar Ólafsson rannsökuðum málið.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson.
    56 min
  • Fiskur í vatni: Mario Vargas Llosa og skáldskapur og þýðingar Þórs Stefánssonar
    Þór Stefánssonar hefur reglulega gefið út ljóðbækur frá árinu 1989 og sú tuttugasta kom út fyrir skemmstu, Sjálfsagðir hlutir og hæpnar fullyrðingar. En fyrir utan að vera afkastamikið skáld er Þór ekki síður þýðandi og hafa tugir bóka með ljóðaþýðingum eftir hann komið út, oft frá forvitnilegum og framandi slóðum. Þetta eru yfirleitt ljóð úr frönskumælandi svæðum heimsins og einnig úr sænsku. Þá hefur Þór einnig verið þýddur og gefinn út erlendis. Þór Stefánsson skáldið og þýðandinn er sjálfstæð eining í ljóðsenu Íslands og hefur nær allar götur staðið í sjálfsútgáfu. Hann segir sífellda þörf fyrir að yrkja og færa tilveruna í ljóð það sem knúi hann áfram, þetta sé eins og hvert annað áhugamál. og þessu tilefni, að ljóðabækurnar eru orðnar 20 talsins - fannst mér kominn tími á að fá Þór hingað í hljóðver og spyrja hann út í allt saman.
    Perúski rithöfundurinn Mario Vargas Llosa var skáldsagnahöfundur, ljóð- og leikskáld og einn áhrifamesti rithöfundur sinnar kynslóðar frá Rómönsku-Ameríku. Hann vakti fyrst verulega athygli á fyrri hluta sjöunda áratugarins og árið 2010 hlaut hann bókmenntaverðlaun Nóbels. Eftir hann liggja tugir skáldsagna, leikrita og greinasafna og verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála, meðal annars íslensku. Auk ritstarfa var Vargas Llosa alla tíð virkur í stjórnmálum, var framan af mikill vinstri maður en snerist síðan. Árið 1990 bauð hann sig fram til forseta í Perú fyrir bandalag mið- og hægri flokka. Vargas Llosa lést í apríl síðastliðnum 89 ára að aldri. Árið 2015 gerði Hermann Stefánsson rithöfundur útvarpsþáttinn Fiskur í Vatni um rithöfundinn Vargas Llosa og tók viðtal við höfundinn. Við ætlum að hefja þáttinn á að hlusta á hluta úr þessum þætti.
    Viðmælendur: Álfrún Gunnarsdóttir, Mario Vargas Llosa og Þór Stefánsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Kúnstpása, Tímaskjól, alþjóðlegu Booker og gildi bókmenntaverðlauna
    Við hringjum norður á Siglufjörð í Sæunni Gísladóttur sem gaf út fyrr á þessu ári skáldsöguna Kúnstpásu. Þetta er saga tveggja kvenna frá mismunandi tímum, 2020 og 1930. Þetta er sveitarómans, ástarsaga mætti segja, bók um að standa frammi fyrir áskorunum. Og áskoranirnar eru alltaf þær sömu virðist vera. Tímarnir breytast en mennirnir ekki með. Sæunn segir betur frá.
    Og talandi um tímann, þann mikla stýrimann í lífi okkar. Sjálf klukkan eða hvernig sem við sjáum tímann fyrir okkur. Hann þeytist áfram í óvissu en býr um leið til vissu um hið liðna. Er hættulegt að rómantísera hið liðna? Það er hægt að vopnvæða nostalgíu. Verðlaunaskáldsagan Tímaskjól var að koma út á íslensku eftir búlgarska rithöfundinn Georgei Gospodinov. Þetta er frábær skáldsaga sem hlaut alþjóðlegu Booker verðlaunin 2023. Þetta eru djúpkafarabókmenntir sem kafa inn að kjarna mennskunnar, úr hverju erum við, hvenær erum við, hvað eru minningar? Þetta er saga um nostalgíu, gleymsku og að mörgu leyti vísindaskáldsaga í anda Kurt Vonnegut sem spyr stórra spurninga. Heyrum brot og ræðum við þýðendurna, Vesku A. Jónsdóttur og Zophonías O. Jónsson sem þýddu saman úr búlgörsku.
    Í lokin veltum við fyrir okkur bókmenntaverðlaununum. Í Skáldu bókabúð var haldið lítið málþing með þremur erindum. Fáum tvo þeirra hingað í hljóðstofu og heyrum aðeins hvað þeir voru að pæla, það eru þeir Jón Yngvi Jóhannsson og Ægir Þór Jänkhe. Þriðja erindið flutti Soffía Auður Birgisdóttir.
    Viðmælendur: Sæunn Gísladóttir, Veska A. Jónsdóttir, Zophonías O. Jónsson, Ægir Þór Jänkhe og Jón Yngvi Jóhannsson. Tómas Ævar Ólafsson las úr Tímaskjóli.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    54 min
  • Natasha S. í Rússlandi, Madame de Lafayette og Hefnd Diddu Morthens
    Guðrún Kristinsdóttir sem hefur sérhæft sig í frönskum bókmenntum og leikhúsi skrifaði grein í Ritið - tímarit Hugvísindastofnunar þar sem smásögur eru í brennidepli. Greinin fjallar um sagnagerð franska rithöfundarins Madame de lafayette sem var uppi á 17. öld og hafði mikil áhrif með sínum sögulegu smásögum og nóvellum. Lafayette er enn áhrifamikil, kennd í skólum og rannsökuð bæði innan Frakklands og utan.
    Ljóðskáldið Natasha S. var að gefa út ljóðabókina Mara kemur í heimsókn sem fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand. Natasha hefur áður ort um heimalandið í ljóðabókinni Máltaka á stríðstímum sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Natasha er stödd í Moskvu en hún segir okkur símleiðis frá nýju ljóðunum.
    Í lok þáttarins er rætt við Sigríði Pétursdóttur sem var að gefa út bókina Hefnd Diddu Morthens en handritið að henni bar sigur úr bítum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir og þar með er gömul útvarpsrödd orðin ný rödd bókmenntanna en fyrir utan að vera menntuð kvik­mynda­fræðing­ur þá starfaði Sigríður lengi við dag­skrár­gerð hér í Ríkisútvarpinu bæði í út­varpi og sjón­varpi. En rithöfundurinn hefur alltaf blundað í henni, árið 2010 gaf hún út smásagnasafnið Geislaþræðir en Sigríður segir okkur allt um rithöfundadrauminn og nýju bókina í þættinum.
    Viðmælendur: Natasha S., Guðrún Kristinsdóttir og Sigríður Pétursdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    54 min
  • Bókmenntahátíð í Reykjavík II
    Strax frá fyrsta viðburði Alþjóðlegu Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík var ljóst að áhugi fólks var mikill og aðsóknin góð. Þegar dansk-grænlenska ljóðskáldið Kuluk Helms og Bresk-tansaníska nóbelshöfundinn Abdulrazak Gurnah ræddu við Þóru Arnórsdóttur í Norræna húsinu, meðal annars um gildi bókmennta eða vægi í stóru samhengi. Þóra spurði hvort bækur skiptu enn máli, og orðið enn fór illa ofan í Gurnah sem varði kröftuglega mikilvægi bókmenntanna, það hefur ekkert breyst síðan fyrstu mennirnir settust við varðeldinn og sögðu hver öðrum sögur. Við ræðum gildi og vægi bókmennta og bókmenntahátíða við tvo gesti sem sóttu Bókmenntahátíð af kappi, þau Bjargeyju Ólafsdóttur og Val Gunnarsson.
    Við lítum líka aðeins inn á viðburð utandagskrár á Bókmenntahátíð þegar Tunglið útgáfa gaf út þrjár bækur í ritröðinni Svarthol. Á hótel Holt var kakófónískur ljóðalestur, ljóðalest í kappi við tímann og óvænt tónlist. Tunglið gaf út þrjár nýjar bækur eftir Dinçer Güçyeter og Anne Carson sem bæði voru gestir hátíðarinnar og einnig Wolfgang Schiffer sem hefur verið ötull útgefandi og þýðandi íslenskrar ljóðlistar í Þýskalandi.
    Viðmælendur: Bjargey Ólafsdóttir og Valur Gunnarsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Bókmenntahátíð í Reykjavík
    Alþjóðleg Bókmenntahátíð í Reykjavík setti svip sinn á borgina þessa vikuna. Hún var sett í 17. sinn og það á 40 ára afmæli fyrstu hátíðarinnar, á alþjóðlegum degi bókarinnar á ári ljóðsins á afmæli Laxness, Shakespeares og Cervates. Bókmenntastjörnurnar röðuðu sér upp. Sex bókabúðir í borginni tóku einnig þátt í fyrsta alþjóðlega bókabúðaröltinu, Global Book Crawl, og það iðaði allt af bókmenntaþyrstu fólki. Í þættinum lítum við inn á nokkra viðburði, kynnum okkur hitt og þetta sem gerðist á bókmenntahátíð, sér í lagi fyrstu dagana. Ræðum við Knut Ödegaard og Gerði Kristnýju um nýtt ljóðasafn, Áður en Hrafnarnir sækja okkur, förum á smá bókabúðarölt og ræðum við Erlu Elíasdóttur Völudóttur um einn af erlendu gestunum á Bókmenntahátíð, Pajtim Statovci.
    Viðmælendur: Einar Björn Magnússon, James Tomasino, Knut Ødegård, Gerður Kristný og Erla Elíasdóttir Völudóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    53 min
  • Grimmsævintýri
    Einu sinni voru tveir bræður, Jakob og Vilhelm...
    Grimmsævintýri er stórmerkileg og dularfull. Hvaðan koma þau? Hvað eru þau gömul? Af hverju erum við enn að lesa þetta? Og af hverju ættu nútímabörn að þekkja helstu hlutverk lénsskipulags Evrópu á miðöldum?
    Viðmælendur: Aðalheiður Guðmundsdóttir, Romina Werth, Birta Björnsdóttir og Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    55 min
  • Barnabókmenntir: Ungir höfundar, Jessica Love, Sven Nordqvist og fleira
    Sögur fyrir yngra fólkið okkar eru í fararbroddi þessa vikuna. Barnamenning hefur verið allsráðandi á Barnamenningarhátíð í Reykjavík og við látum það lita þáttinn í dag.
    Við ræðum við fjóra unga og upprennandi rithöfunda, aðeins slembiúrtak af stórum hópi krakkahöfunda í 3. bekk Vesturbæjarskóla en þau voru að skrifa sögur og héldu útgáfuhóf, eins og gert er með allar góðar bækur. Heyrum sögurnar og aðeins um þær hér á eftir.
    Skemmtilegt viðtal við Jessicu Love frá Bandaríkjunum. Bækur hennar eru afskaplega myndrænar, fjalla um Júlían. Þær eru stuttar en djúpar fjalla um fjölbreytileika mannflórunnar, og það að fullorðnast andspænis hefðum samfélagsins en líka í takt við síkvikt, lifandi og litríkt mannlífið.
    Myndríku bækurnar um þá félaga Pétur og köttinn Brandur eftir sænska mynd- og rithöfundinn Sven Nordqvist hafa verið endurútgefnar og endurþýddar undanfarið en nokkrar þeirra komu út undir lok síðustu aldar í þýðingu Þorsteins frá Hamri. Við förum í sænsku sveitirnar og ræðum við Ástu Halldóru Ólafsdóttur og Þorbjörgu Karlsdóttur.
    Samtal við ritstjóra Lestrarklefans um lista BBC yfir 100 bestu barna og ungmennabækur allra tíma. Við förum í barnabókaferðalag í gegnum aldirnar með Rebekku Sif Stefánsdóttur og Díönu Sjöfn Jóhannsdóttur.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners