Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Bókahönnun verðlaunuð, innrás utan úr geimnum og samtal þriggja kynslóða
    Á dagskránni í dag: Íslensku bókahönnunarverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn, vísindaskáldskapur og innrás utan úr geimnum í Guðir og og annað fólk eftir Steingrím Dúa og samtal þriggja kynslóða og áhugi á sögum sinna nánustu í unglingabókinni Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur.
    Viðmælendur: Anton Jónas Illugason, Kristján B. Jónasson, Steingrímur Dúi Másson og Brynhildur Þórarinsdóttir.
    51 min
  • Djöflarnir ásækja alla tíma
    Djöflarnir er pólitísk satíra og umdeildasta bók Fjodors Dostojevskís. Hún fjallar um hóp róttæklinga í rússneskum smábæ á síðari hluta 19. aldar sem setur allt á annan endann. Markmiðið er bylting. Stóra samsærið snýst allt um hina dularfullu og myrku aðalpersónu Níkolaj Stavrogín og hina slóttugu hjálparhönd hans Pjotr Verkhovenskí.
    Þetta er skáldsaga um blekkingar, svik, róttækni og öfgar. Hún fjallar um það hvernig hugmyndir geta smitast og heltekið menn, gert þá andsetna af þeim. Tómarúmið sem myndast þegar guð er dauður og örvænting og öfgar færa til markstangir stjórnmálanna, það tómarúm fyllist oft af einhverju sem tekur yfir án miskunnar og stundum án skynsemi.
    Viðmælandi: Gunnar Þorri Pétursson.
    56 min
  • Brjóstvasabók, Gyrðir endurútgefinn og trúboðafélag gefur út Narníu-ævintýrin
    Tvær minnstu bækur liðins árs komu út undir merkjum Truflunar útgáfu og þær eru svo litlar að þær passa í brjóstvasa. Fyrri bókin Fjölskyldusaga er eftir Fríðu Þorkelsdóttur sem á hugmyndina að vasabókunum en hana fékk Fríða eftir að Vottar jéhóva létu hana fá agnarlitla bók um sögur úr biblíunni. Nýja bókin í vasabókaútgáfu Fríðu heitir Stytturnar í hillunum og er eftir rithöfundinn og leikskáldið Evu Rún Snorradóttur þar sem fjallað er um minningar, skrásetningu og forgengileikann. Hún kemur í þáttinn og segir betur frá.
    Notalegur lestur er það sem einkennir hátíðarnar og hjá mér er það orðið hefð að lesa Gyrði Elíasson. Dimma útgáfa hélt áfram á síðasta ári að endurútgefa gömul og sígild verk eftir Gyrði sem sum hver eru illfáanleg. Sjálfur sendi Gyrðir frá sér tvær þýðingar á síðasta ári, annars vegar Gleði skipbrotanna eftir Giuseppe Ungaretti og Barnæska eftir Jona Oberski. Við ætlum að heyra smá brot úr viðtali frá 2018 við Gyrði um Sorgarmarsinn sem er ein af nýendurútgefnu bókunum, lokakaflinn í þríleik ásamt Sandárbókinni og Suðurglugganum...
    Ein af laumum bókaútgáfu síðasta árs má fullyrða að hafi verið endurútgáfa sömuleiðis. En öll 7 bindin um Ævintýriheim Narníu komu út undir lok ársins. Þetta eru gömlu þýðingar Kristínar R. Thorlacius sem komu út á síðustu áratugum síðustu aldar, þekktar fyrir vandað og blæbrigðaríkt mál. Þessi ævintýri um ljónið, nornina og skápinn, baráttu góðs og ills og hetjudáðir hafa heillað marga fantasíuaðdáendur frá því að bækurnar komu út um miðja síðustu öld. Töfraheimur Narnia er innblásinn af hinum ýmsu goðsögnum og ævintýrum en ekki síst kristinni trú og biblíunni en Lewis sjálfur var afar trúaður og skrifaði nokkrar bækur um trú á ferlinum. Og því ef til vill ekki furða að það er kristniboðafélagið hér á landi sem stendur að útgáfu Narníu bókanna og við förum í Basarinn í Austurveri til að ræða við trúboða um Narníu.
    Viðmælendur: Eva Rún Snorradóttir, Gyrðir Elíasson og Karl Jónas Gíslason.
    51 min
  • Ráðgátur fyrir börn og sólmánuður 1878
    Fjallað um barnabækurnar Drottningin af Galapagos eftir Felix Bergsson í bókaflokknum um ævintýri Freyju og Frikka og Rækjuvík eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, þriðju bókina um tvíburana Ingu og Baldur.
    Einnig er rætt við Kristínu Ómarsdóttur um þriðju bókina um uppvöxt langömmu hennar í Biskupstungunum, Móðurást: Sólmánuður. Fyrir fyrstu bókina Móðurást: Oddný hlaut Kristín Fjöruverðlaunin og önnur bókin, Móðurást: Draumþing fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin.
    Viðmælendur: Kristín Ómarsdóttir, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Felix Bergsson.
    51 min
  • Bakgrunnurinn, Draugamandarínur og Þyngsta frumefnið
    Þrjár nýjar, vænar og grænar ljóðabækur í þætti dagsins.
    Alda Björk segir frá og les upp úr nýjustu ljóðabókinni sinni, Bakgrunninum, sem er jafnframt fyrsta bókin í nýrri ritröð KIND-útgáfu.
    Draugamandarínur er fyrsta ljóðabók Birgittu Bjargar Guðmundsdóttur, við ræðum um efni bókarinnar, mandarínuberki, tekknóbreik og röntgengeisla og hún les upp nokkur ljóð.
    Jón Kalman Stefánsson var að senda frá sér fimmtu ljóðabókina sína, Þyngsta frumefnið, sem tilnefnd er til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Jón Kalman verður gestur þáttarins og ræðir við mig um ljóðin og skáldskapinn.
    51 min
  • Barnabókabílar, umbrotatímar á Íslandi og rússnesku sálirnar á 19. öld
    Þátturinn í dag verður uppfullur af furðulegum ökutækjum í bókum fyrir börn, Undrarútan, Ævintýrabíllinn og Brandarabíllinn.
    Þá verður líka fjallað um nýja skáldsögu frá Einari Kárasyni, Sjá dagar koma, sem hann skrifaði eftir ábendingu forseta Íslands og er örlagasaga manns á Vestfjörðum í lok 19. aldar eftir að bandarísk lúðuveiðiskip fara að venja komur sínar hingað.
    Svo er rætt um stærðarinnar doðrant beint úr rússnesku klassíkinni, Minnisblöð veiðimanns eftir raunsæismeistarann Ívan Túrgenev sem Áslaug Agnarsdóttir hefur verið að þýða nú nokkuð lengi en var að koma út og það eru tíðindi.
    Viðmælendur: Sváfnir Sigurðarson, Áslaug Agnarsdóttir og Einar Kárason.
    52 min
  • 12 ára strákur ráðinn skólastjóri og þriðji þýðandi Hobbitans
    Tolkien aðdáendur hafa eflaust fengið af því fréttir að í jólabókaflóðinu í ár er ný þýðing á Hobbitanum. Það sætir tíðindum af nokkrum ástæðum. Íslenskar þýðingar á bókum Tolkiens eiga sér svolítið flókna sögu og hef ég rakið það hér í þessum þætti sem og annarsstaðar áður. Í stuttu máli kom hún fyrst út á íslensku um 40 árum eftir upprunalegu útgáfuna árið 1978 í þýðingu feðganna Úlfs Ragnarssonar og Karls Ágústs Úlfssonar, síðan í nýrri þýðingu Þorsteins Thorarensen árið 1997 og loks núna í þriðju þýðingunni eftir Sólveigu Sif Hreiðarsdóttur og með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar. Svo hafa útgáfuflækjur valdið því að Hobbitinn og flest allt Tolkien-efni á íslensku hefur lengi verið ill- eða ófáanlegt, enginn hefur tekið það að sér til að kaupa þýðingarréttinn og endurútgefa. Einhver liggur á þeim eins og dreki á gulli. En hobbitinn Bilbó er sum sé snúinn aftur... aftur. Út og heim aftur. Fjöllum um hann í lok þáttar.
    Kerfisgallar og seinagangur veldur því að 12 ára strákur fær stöðu skólastjóra í bókinni Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson. Upp vakna spurningar um frelsi og vald, hvort eigi að hafa svín í skólastofum og hvort nemendur ættu að hafa lýðræðislegt vald til að reka kennara. Og kannski er erfiðara að vera kennari og skólastjóri en krakka hafði grunað og erfiðara að vera nemendur en kennarar gera sér grein fyrir. SKólastjórinn hlaut bókmenntaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2024 en er nú nýkomin út.
    Viðmælendur: Ævar Þór Benediktsson, Karl Ágúst Úlfsson, Sólveig Sif Hreiðarsdóttir og Björn Thorarensen.
    Lesarar: Magnús Guðmundsson, Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
    51 min
  • Harðstjórinn á eyjunni, fastapunktur í ljóðlistinni og Sálnasafnarinn
    Í þættinum er fjallað um barnabókina Paradísareyjan eftir Emblu Bachmann, rætt er við Anton Helga Jónsson ljóðskáld og formaður óðfræðifélagsins Boðn um nýjustu útgáfu SÓN tímarits um ljóðlist og óðfræði og Þór Tulinius kemur og segir frá sinni fyrstu skáldsögu, Sálnasafnarinn, sem er nýkomin út.
    Viðmælendur: Embla Bachmann, Anton Helgi Jónsson og Þór Tulinius.
    51 min
  • Sólgos, eldgos og siðaskipti
    Fortíðin og framtíðin í þætti dagsins í þremur íslenskum skáldsögum sem eru nýkomnar út. Allar gerast á Íslandi á ólíkum tímum við ólíkar aðstæður þegar heimurinn tekur róttækum breytingum, fast að heimsendi.
    Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson segir frá fyrstu skáldsögunni sinni, Kómeta, en Aðalsteinn hefur áður gefið út tvö smásagnasöfn og birt ljóð í tímaritum. Kómeta er metnaðarfull bók og stór saga sem gerist í kringum siðaskiptin á 16. öld.
    Tvær ungmennabækur verða á dagskrá sem báðar fjalla um breyttan heim annarsvegar eftir sólgos en hinsvegar eftir eldgos, það eru bækurnar Sólgos eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Flóttinn á norðurhjarann eftir Nönnu Rögnvaldardóttur.
    Viðmælendur: Arndís Þórarinsdóttir, Nanna Rögnvaldardóttir og Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson.
    52 min
  • Bókaklúbbar fræga fólksins, Nóbell Laxness 70 ára og Frumbyrjur
    Þessi þáttur fer um víðan völl, við tökum aðeins saman útvarpsefni um þann tíma fyrir 70 árum þegar Halldór Kiljan Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955.
    Það verða líka bollaleggingar um bókaklúbba fræga fólksins. Dua Lipa, Reese Witherspoon, Sarah Jessica Parker Emma Watson og auðvitað drottningin Oprah Winfrey. Það virðist enginn frægur meðal frægra nema vera með bókaklúbb. Hvaða menningarlegu aðstæður skapar það - hvers vegna vill frægt fólk tengjast aðdáendum í gegnum bækur?
    Loks er það ný skáldsaga eftir Dag Hjartarson, Frumbyrjur. Það er saga úr íslenskum kjarna, afdalurinn, kýrin að bera, konan ólétt og alveg að koma jól. Undir niðri er nístandi fortíð, draumar og tilvistarlegar vangaveltur um lífið á þessari eyju.
    Viðmælendur: Dagur Hjartarson.
    52 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners