Barir, vínveitingastaðir og skemmtistaðir fá leyfi til að opna 25. maí, og fjöldi gesta í sundlaugum og líkamsræktarstöðvum verður fyrst um sinn helmingur af því sem venjulega er leyfður. Þetta er meðal tillagna sem sóttvarnalæknir hyggst leggja fyrir heilbrigðisráðherra.
Stúdentar gagnrýna aðgerðir stjórnvalda um sumarstörf og telja þær ganga allt of skammt.
Ekki hefur verið boðaður nýr sáttafundur í kjaradeilu flugfreyja og Icelandair eftir að stuttum fundi í dag var slitið.
Litháum er ekki lengur skylt að bera andlitsgrímur utan dyra. Útiveitingastaðir og kaffihús hafa verið opnuð. Farþegaflug milli landa hófst að nýju í dag.
Samkvæmt verðmati Capacent á Icelandair á félagið ekki eftir ná sömu tekjum og það var með 2019 fyrr en 2024. Niðurstaða kjarasamninga skipti miklu máli fyrir framtíð félagsins og virði þess. Arnar Páll Hauksson talar við Snorra Oddsson.
Það væri undir öllum kringumstæðum pólitískt grettistak fyrir bresku ríkisstjórnina að ljúka útgöngu Breta úr Evrópusambandinu fyrir árslok eins og til stendur. En Brexit á tímum COVID-19 veirunnar er hálfu erfiðara verk en ella. Inn í þetta fléttast samband Breta við Bandaríkin og umheiminn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Það væri undir öllum kringumstæðum pólitískt grettistak fyrir bresku ríkisstjórnina að ljúka útgöngu Breta úr Evrópusambandinu fyrir árslok eins og til stendur. En Brexit á tímum COVID-19 veirunnar er hálfu erfiðara verk en ella. Inn í þetta fléttast samband Breta við Bandaríkin og umheiminn. Arnar Páll Hauksson segir frá.