Nokkuð hefur verið um að fólk sem boðað var í bólusetningu með bóluefni Janssen á fimmtudag, afþakki boðið. Skammtarnir sem á að nota verða gefnir með þeim fyrirvara að efnið skili sér til landsins í tæka tíð.
Stjórnendur Landspítala vinna nú með hraði að lausn á fyrirsjáanlegum vanda á bráðadeild spítalans.
Marktækur munur er á andlegri heilsu innflytjenda og innfæddra Íslendinga í kórónuveirufaraldrinum. Þetta sýnir rannsókn Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins.
Slakað hefur verið á smitvörnum í stærstu borgum Indlands. Kórónuveirusmitum hefur fækkað þar að undanförnu.
Refapörum á Hornströndum og í Snæfellsjökulsþjóðgarði hefur ekki fjölgað eftir friðun þótt refum annars staðar á landinu hafi fjölgað umtalsvert á tuttugu árum.
Það er gott líf í vaxtajöðrunum í hrauninu í Nátthaga segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði. Hraun rennur enn ofan í dalinn, þó að rennsli hafi stöðvast í sumum hraunánum og storknað yfir aðrar. Hann segir að framleiðni í gosinu sé svipuð, hraunið renni úr rás sem ekki sést, út í hraunár og á um 10 mínútna fresti komi gusur upp úr gígnum. Ragnhildur Thorlacius talar við Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing.
Frumvarp um brotastarfsemi á vinnumarkaði sem átti að leggja fram í tengslum við lífskjarasamninginn verður ekki lagt fram fyrir þinglok. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að leggja fram frumvarp hefur ekki náðst sátt um það innan verkalýðshreyfingarinnar. Líklegt er að tekist verði á um málið í næstu kjaraviðræðum. Arnar Páll Hauksson sagði frá.
Breska stjórnin hefur haft mörg orð um nauðsyn þess að bæta skólakrökkum upp námstíma sem glataðist vegna lokaðra skóla í veirufaraldrinum. Ráðinn sérstakur umsjónarmaður aðgerða en nú, um fjórum mánuðum síðar, hefur hann sagt af sér því stjórnin vilji ekki reiða fram það fé sem þurfi til að aðgerðir skili árangri. Þetta þykir dæmi um vanefndir fyrri loforða og bætist við önnur slík mál sem valda urgi í Íhaldsflokknum. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.