Spegillinn 14.4.2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku segja að góð staða á faraldrinum innanlands sé ein ástæða þess að ákveðið var að hætta að nota bóluefni Astrazeneca. Sú staðreynd að önnur bóluefni séu í boði hafi einnig áhrif.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir telur líklegt að þeir sem fengið hafi fyrri bólusetningu með Astra Zeneca og eru í áhættuhópi fái seinni skammtinn með öðru efni. Hann gerir sér vonir um að búið verði að bólusetja vel yfir 200 þúsund manns í júní eða júlí.
Stefnt er að því að flugfélagið Play hefji áætlunarflug í lok júní. Stjórnendur munu kynna fyrirætlanir sínar á næstu dögum en félagið hefur tryggt sér ríflega fimm milljarða króna.
Lengra efni:
Rúna Hauksdóttir Hvannnberg, forstjóri Lyfjastofnunar segir að ákvörðun Dana um að hætta að nota AstraZeneca byggi á því að önnur bóluefni séu í boði. Danir hafi þegar notað nokkuð mikið af AstraZeneca og þjóðir horfi einnig til þess hve langt þær eru komnar í að bólusetja vissa aldurshópa. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Rúnu
Vonir standa til að Ísland taki þátt í tilraunaverkefni í næsta mánuði með að nota samræmt covid-bólusetningarvottorð á Evrópska efnahagssvæðinu. Ingi Steinar Ingason, sviðsstjóri hjá Landlækni segir að ekki séu dæmi um að framvísað hafi verið fölsuðum vottorðum á landamærunum. Stefnt er að því að samræmdu vottorðin verði komin í almenna notkun í seinni hluta júní. Arnar Páll Hauksson ræddi við Inga Steinar
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að horfurnar í efnahagsmálum heimsins séu nú betri en þegar hann sendi frá sér álit í október. Bólusetning og opinber stuðningur við fólk og fyrirtæki hefur breytt skoðunum sjóðsins. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá