Spegillinn

Bólusetningum seinkar um mánuð


Listen Later

Öllum eldri en 16 ára verður boðin bólusetning gegn COVID-19 í lok júlí í stað lok júní, eins og áður stóð til. Þetta er vegna tafa á afhendingu bóluefnis AstraZeneca.
Sóttvarnalæknir segir ólíklegt að hann leggi til tilslakanir á sóttvörnum fyrir 17. mars. Hann segir að góðar líkur séu á að tekist hafi að komast fyrir hópsmitið sem upp kom um síðustu helgi.
Breiðafjarðarferjan Baldur komst loks til hafnar á öðrum tímanum í dag.
Forsætisráðherra segir að markmiðið með átakinu Hefjum störf, sem kynnt var í dag, sé að koma í veg fyrir að atvinnuleysi verði böl í samfélaginu. Stjórnvöld ætla að verja allt að 5 milljörðum króna til að styðja við að atvinnulausir verði ráðnir í ný störf.
Ragnar Þór Ingólfsson verður áfram formaður VR. Hann hlaut tæpa tvo þriðju hluta atkvæða í formannskosningu.
Sjórnvöld ætla að verja allt að fimm milljörðum króna í átakið Hefjum störf sem kynnt var í dag. Markmiðið er að til verði allt að 7.000 störf. Í mjög stuttu máli geta lítil og meðalstór fyrirtæki, sem eru með færri en 70 starfsmenn, sveitarfélög og félagsamtök sótt um stuðning til að ráða fólk sem hefur verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur. Stuðningur með hverjum nýjum starfsmanni eða nýju starfi er tæpar 473 þúsund krónur á mánuði í allt að hálft ár og að auki 12,5 prósenta framlag í lífeyrissjóð. Upphæðin er sú sama og atvinnulausir geta fengið þegar þeir eru á tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Þá er boðað átak, sem kynnt verður bráðlega, til að skapa störf fyrir námsmenn í sumar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bindur vonir við að þessar aðgerðir skili árangri. Arnar Páll Hauksson talar við Katrínu Jakobsdóttur, Ásmund Einar Daðason, Karl Björnsson og Unni Sverrisdóttur.
Það er kominn nýr maður í brúnna, öllu heldur nýr ráðherra breskra samskipta við Evrópusambandið og skyndilega eru samskiptin stöðugt fréttaefni. David Frost var aðalsamningamaður Breta við Evrópusambandið og á nú að sjá um framkvæmd samningsins. Fyrsta ákvörðun hans storkar ESB í máli sem er þó ekki stórvægilegt. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Fyrir nærri 53 árum, í júní 1968, hljóðritaði hljómsveitin The Rolling Stones lagið Sympathy for the devil, upphafslag plötunnar Beggars Banquet sem kom út í desember sama ár. Lag og texti er eftir söngvarann Mick Jagger. Sympathy for the devil er eitt allra þekktasta lag Rolling Stones, eitt það umdeildasta, en að sama skapi eitt mikilvægasta lagið sem Stones hafa sent frá sér á nærri sextíu ára ferli. Kristján Sigurjónsson talar við Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarspekúlant og félagsfræðing
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners