Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins segir að hægt verði að fallast á að veita Bretum skamman frest á útgöngu úr sambandinu til þess að gefa breskum þingmönnum kost á að samþykkja samninginn um úrsögn, sem fyrir liggur. Þeir hafa tvívegis fellt hann.
Fyrsta framkvæmdaleyfið af þremur vegna Kröflulínu þrjú hefur verið gefið út. Vonast er til að línan verði komin í rekstur fyrir lok næsta árs.
Loðnubresturinn er skellur. Sumir sjá fram á að árstekjurnar skerðist um helming. Fiskvinnslufólk hefur sumt varið vikum og mánuðum í að skrúbba hvern fermetra í vinnsluhúsunum og sveitarfélög gera upp við sig hvernig skuli bregðast við tekjusamdrætti.
Um leið og Norðmenn fagna eða minnast þess að 25 ár eru liðin frá því að EES-samningurinn var lögleiddur verða raddir í Noregi háværari um að Norðmenn segi sig frá samningnum og semji upp á nýtt við Evrópusambandið
Ljóst er að skiptar skoðanir eru meðal kaupmanna hvort loka eigi Laugavegi, Bankastræti og Skólavörðustíg fyrir bílaumferð til frambúðar.