Viðbragðsáætlun íslenskra heilbrigðisyfirvalda er óbreytt, þótt alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi lýst yfir neyðarástandi vegna Wuhan-kórónaveirunnar. Þjóðaröryggisráð fundaði í dag um yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Sérfræðingar á veirufræðideild Landspítalans nýta helgina í að setja upp próf sem gerir þeim kleift að greina veiruna.
Stefnt er að niðurgreiðslu á innanlandsflugi í haust fyrir íbúa sem búa í að minnsta kosti 270 kílómetra akstursleið frá höfuðborgarsvæðinu.
Bretar ganga formlega úr Evrópusambandinu klukkan ellefu í kvöld.
Bæjarstjórinn í Grindavík segir óvíst hvort rýma þurfi bæinn komi til hraungoss.
Ákveðið hefur verið að taka lokun sundlaugarinnar á Raufarhöfn til endurskoðunar.