Fréttir:
Lögregla hefur rökstuddan grun um að eldsupptök í einbýlishúsinu við Kirkjuveg á Selfossi í gær, þar sem tvennt fórst, séu af mannavöldum. Farið hefur verið fram á viku gæsluvarðhald yfir karli og konu á miðjum aldri.
Forseti Alþýðusambandsins, segir að það sé gríðarlega alvarlegt mál þegar fólk sé rekið úr stéttarfélagi. Sérstaklega þegar það blandist inn í kosningu á forystusveit.
Starfshópur skipaður af umhverfisráðherra leggur til að notkun einnota burðarpoka úr plasti verði hætt, einnota plastáhöld bönnuð og endurvinnsla aukin.
Gerð samnings um að Vegagerðin sinni Húsavíkurhöfðagöngum er á lokastigi, segir samgönguráðherra. Hann beitti sér fyrir því að ljósin í göngunum yrðu kveikt að nýju í dag.
Saksóknarinn sem hefur síðustu ár sótt til saka marga af þekktustu stjórnmálamönnum Brasilíu samþykkti í dag boð um að verða dómsmálaráðherra í næstu ríkisstjórn landsins.
Lengri umfjallanir:
Hvað hindrar slökkviliðsmenn helst í að komast inn í brennandi hús? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu.
Starfshópur hefur lagt fram fjölbreyttar tillögur til að minnka plastmengun. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við formann hópsins, Laufeyju Helgu Guðmundsdóttur, lögfræðing.
Þó að rafbílum muni fjölga nokkuð ört á næstu árum mun það ekki nægja til að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Arnar Páll Hauksson fjallar um nýja skýrslu um rafbílavæðingu.