Spegillinn

Býst við skæðum inflúensum


Listen Later

Yfirlæknir Barnaspítala Hringsins býst við skæðum inflúensum og RS veiru veikindum í vetur. Hann er ánægður með að ekki hafi fleiri börn en raun ber vitni lagst inn á spítala af völdum covid.
Bensínverð hefur hækkað um 40 krónur frá áramótum. Formaður FÍB hvetur stjórnvöld til að bregðast við með tímabundinni lækkun olíuverðs.
Íslenskum skipum verður heimilt að veiða rúmlega 660 þúsund tonn af loðnu. Áætlað aflaverð er um fimmtíu milljarðar króna.
Sameinuðu þjóðirnar segja hættu á að viðkvæm börn og eldri borgarar svelti til bana vegna matarskorts í Norður-Kóreu.
Hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands sjást ekki greinileg merki um að áhætta af veðurfarstengdum atburðum hafi aukist. En aurskriður vekja upp spurningar um veðurfarsbreytingar sem þarf að taka mjög alvarlega, segir sviðsstjóri vátryggingasviðs.
Ragnhildur Thorlacius talar við Jón Örvar Bjarnason.
Í viðræðum ríkisstjórnarflokkanna þriggja gæti reynst erfitt að komast að sameiginlegri niðurstöðu um stofnun hálendisþjóðgarðs. Málið strandaði í þinginu og var sent aftur í umhverfisráðuneytið. Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um Miðhálendisþjóðgarð. Þar segir: Stofnaður verður þjóðgarður á miðhálendinu í samráði þverpólitískrar þingmannanefndar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sveitarfélaga, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og annarra hagsmunaaðila. Skoðaðir verða möguleikar á þjóðgörðum á öðrum svæðum. Arnar Páll Segir frá. Heyrist í Guðna A. Jóhannessyni, Herði Arnarsyni, Hildigunni Thorteinsson og Páli Erland.
Það virðist ekki vera neitt lát á bókaútgáfu þrátt fyrir öfluga samkeppni frá öðrum miðlum, streymisveitum og samfélagsmiðlum. Bókaútgefendur þurftu að skila inn skráningu í Bókatíðindi í þessari viku og jólabókaflóðið verður á sínum stað þrátt fyrir að bókaútgáfan hafi dreifst meira yfir árið á síðustu árum. Kristján Sigurjónsson ræddi við Pétur Má Ólafsson útgefanda og stjórnarmann í Félagi íslenskra bókaútgefenda og spurði fyrst hvers kyns bækur væru gefnar út á þessu ári.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners