Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag kortafyrirtækið Valitor til að greiða Sunshine Press og Datacell samtals 1,2 milljarða króna bætur eftir að Valitor lokaði fyrir greiðslugátt þar sem tekið var við millifærslum til styrktar Wikileaks.
Kjörsókn í atkvæðagreiðslunni um nýjan kjarasamning félagsmanna Starfsgreinasambandsins hefur líklega ekki verið dræmari áður. Vinnumarkaðsfræðingur telur að til greina komi að sleppa kosningunum í félögunum.
Neytendasamtökin ætla að bregðast hart við og vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem hækka verð vegna nýsamþykktra kjarasamninga. Formaður samtakanna segir að ekki sé hægt að leyna verðhækkunum á tímum samfélagsmiðla.
Krabbameinssjúk kona á Egilsstöðum keypti flugmiða í lyfjameðferð til Reykjavíkur fyrir sig og fjöskylduna á 200 þúsund krónur. Flugmiðar barnanna fást ekki endurgreiddir frá Sjúkratryggingum.
Nýkjörinn forseti Úkraínu hvetur þjóðir heimsins til að herða refsiaðgerðir gegn Rússum. Íbúum í austurhéruðum Úkraínu var í dag heimilað að sækja um rússnesk vegabréf.
Félög innan Starfsgreinasambandsins og verslunarmenn hafa samþykkt lífskjarasamninginn. Atvinnurekendur hafa líka samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Kosningaþátta hjá þeim var 74% og 98% samþykktu samninginn. Innan Starfsgreinasambandsins var meðal kjörsókn 12,7%. 80,6 prósent sögðu já og 17,7% nei. Þetta segir ekki alla söguna um kjörsókn því kjörsókn var allt niður í 5%. Kjörsókn var hins vegar tæp 21% hjá verslunarmönnum í samningum við SA og tæp 27% í samningi við Félag atvinnurekenda. Yfir 88% voru samþykk samningnum. Arnar Páll talar við Flosa Eiríksson.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að fyrirtæki geti ekki leynt verðhækkunum á tímum samfélagsmiðla. Neytendasamtökin hyggist bregðast hart við verðhækkunum og ætli að vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem hækka vöruverð. Bergljót Baldursdóttir talar við Breka.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon