Spegillinn 29. ágúst 2018
Fréttir:
Þó að rekstur flugfélaganna verði erfiðari, þýðir það ekki að hér verði kollsteypa, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Gjaldeyrisforðinn sé stærri en nokkru sinni, skuldastaða ríkissjóðs betri en hún hefur verið lengi og eiginfjárstaða bankanna sé góð. Ragnhildur Thorlacius.
Eftir 500 daga á hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum hér á landi að vera orðin tíu prósent. Horfurnar á því að markmiðið náist eru ágætar. Árangurinn skrifast þó ekki nema að örlitlu leyti á fjölgun vistvænna bíla. Ísland er næstum best í heimi þegar kemur að nýskráningum rafbíla en enn eru margar hindranir í veginum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðna A. Jóhannesson, orkumálastjóra, og Egil Jóhannsson, forstjóra Brimborgar.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson.