Framkvæmdastjóri SA segir að þó að meginþorri fyrirtækja geti staðið undir þeim launahækkunum sem samið var í gær sé því miður ljóst að einhver fyrirtæki verði að grípa til hagræðingaraðgerða.
Formaður bankaráðs Seðlabankans og nefndarmenn í peningastefnunefnd gagnrýna að forsenda kjarasamninga sé að vextir lækki. Einn þeirra segir að þetta sé galið. Seðlabankastjóri segir óheppilegt að sérstakt ákvæði um lækkun stýrivaxta hafi verið sett inn í kjarasamninga.
Ástralski kynþáttahatarinn og hægriöfgamaðurinn sem réðst á gesti tveggja moska í Christchurch á Nýja-Sjálandi um miðjan mars verður á morgun ákærður fyrir 50 morð og tugi morðtilrauna.
Fyrirhugaðar breytingar á strandveiðikerfinu falla í misgóðan jarðveg hjá smábátaeigendum.
Í Speglinum var rætt við Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóra SA, Vilhjálm Birgisson formann Verkalýðsfélags Akraness og Katrínu Ólafsdóttur lektor í HR og nefndarmann í peningastefnunefnd Seðlabankans um nýgerðan kjarasamning.