Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að miðað verði við eins metra nálægðarreglu í stað tveggja metra. Þá leggur hann til að samkomur verði takmarkaðar við tvö hundruð manns í stað hundrað.
Lögmaður konu sem hyggur á skaðabótamál við Krabbameinsfélagið vegna rangrar niðurstöðu úr leghálssýnatöku hefur fengið sjö fyrirspurnir vegna sambærilegra mála.
Norðurlöndin hafa komið betur út úr efnahagskreppunni vegna COVID-19 og en önnur Evrópuríki, samkvæmt samantekt frönsku AFP-fréttastofunnar í dag. Landsframleiðsla hafi dregist minna saman en á evrusvæðinu.
Bið er eftir því að að komast í endurhæfingu á Reykjalundi vegna eftirkasta Covid-19. Um 20 manns eru á biðlista.
Gullæði virðist hafa gripið um sig meðal viðskiptavina Costco því allar gullstangirnar sem verslunin var með á tilboði seldust upp á einum degi.
Samkvæmt nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra hefur stuðningur við dánaraðstoð aukist meðal heilbrigðisstarfsmanna hér á landi. Síðasta viðhorfskönnun til þessa viðkvæma málaflokks er þó orðin 10 ára gömul. Þá taldi um fimmtungur lækna og hjúkrunarfræðinga réttlætanlegt undir vissum kringumstæðum að aðstoða sjúklinga við að deyja fremur en að lifa. Á meðal almennings var hlutfallið mun hærra í könnun fyrir fimm árum. Þrír af hverjum fjórum voru því fylgjandi að fara að dæmi nokkurra nágrannaþjóða okkar sem veita dauðvona sjúklingum dánaraðstoð. Eitt þeirra landa sem vitnað er til í skýrslu heilbrigðisráðherra er Sviss. Jón Björgvinsson segir frá.
Það var Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ásamt níu öðrum þingmönnum sem bað um skýrslu um dánaraðstoð. Heilbrigðisráðherra hefur lagt hana fram á Alþingi. Þar er dánaraðstoð skipt í 4 flokka eða hugtök: líknarmeðferð, óbein dánaraðstoð, læknisaðstoð við sjálfsvíg og loks beina dánaraðstoð. Farið er yfir hvernig dánaraðstoð er háttað í löndum þar sem hún er leyfð. Og ráðuneytið leggst ekki gegn því að gerð verði viðhorfskönnun meðal heilbrigðisfólks eins spurt var um en vill líka að slík könnun verði gerð meðal almennings. Bryndís Haraldsdóttir segir skýrsluna vera mikilvægt innlegg í umræðuna um þessi mál. Mál sem hún segir að þurfi talsverða þolinmæði og umræðan þurfi að þroskast. Arnar Páll Hauksson talar við Bryndísi Haraldsdóttur.
Nauðganir og annað kynferðislegt ofbeldi er daglegt brauð í gallabuxnaverksmiðjum í Lesotho í Suður-Afríku. Kröfur um úrbætur urðu háværar eftir að landlæg misnotkun komst í hámæli en COVID-19 heimsfaraldurinn hefur lamað réttindabaráttu kvenna í Lesotho. Pálmi Jónasson segir frá.