Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans segir Íslendinga alls ekki sloppna við kórónuveiruna. Nægt fóður sé fyrir nýja bylgju.
Íbúar á Völlunum í Hafnarfirði fengu fyrir mistök SMS-skilaboð frá Almannavörnum í dag um að þeir væru á hættusvæði vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Unnt er að greina leghálssýni hér innanlands. Þetta kemur í svari Landspítalans við fyrirspurn heilbrigðisráðuneytisins. Þó þyrfti að kaupa tæki frá Krabbameinsfélaginu og ráða sérhæft starfsfólk.
Sóttvarnir verða hertar í Póllandi næstu þrjár vikur þar sem COVID-19 tilfellum hefur fjölgað mjög að undanförnu. Að óbreyttu stefnir í að heilbrigðiskerfið ráði ekki við ástandið.
Tíu þingmenn, átta karlar og tvær konur, hafa nú lýst yfir að þeir hyggist ekki gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu.
Heilbrigðisráðherra segir að það muni hafi heilmikil áhrif ef bóluefni frá Astra Zeneca verður dæmt úr leik. Lyfjastofnun Evrópu mun á morgun kveða upp úrskurð um hvort hættulaust sé að nota bóluefnið. Gert hefur verið ráð fyrir að Ísland fái 76 þúsund skammta af bóluefninu á öðrum ársfjórðungi. Heilbrigðisráðherra flutti munlega skýrslu á Alþingi í dag um sóttvarnir og bólusetningar. Arnar Páll Hauksson tók saman. Heyrist í Svandísi Svavarsdóttur,Önnur Kolbrúnu Árnadóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Helgu Völu Helgadóttur.
Umfangsmiklar breytingar eru í farvatninu á þjónustu ríkis og sveitarfélaga við börn. Stigskipta á þjónustunni og samhæfa hana með það að markmiði að grípa börn og fjölskyldur áður en í óefni er komið. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og ræddi við Ernu Kristínu Blöndal formann stýrihóps stjórnarráðsins í málefnum barna.
Boris Johnson forsætisráðherra Breta var vart búinn að kynna nýja öryggis-, varnar- og utanríkisstefnu í gær þegar ummælum Dominic Raab utanríkisráðherra um að Raab hirti lítt um mannréttindamál í viðskiptasamningum var lekið. Ummælin styrkja bæði stjórnarþingmenn og aðra í þeirri trú að ríkisstjórnin sé of höll undir einræðislönd eins og Kína, fylgi fremur hentistefnu en stefnufestu. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.