Ekki er þörf á að bregðast við dómi yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu segir dómsmálaráðherra. Landsréttur sé löglega skipaður samkvæmt íslenskum lögum. Dómar Mannréttindadómstólsins séu ekki lagalega bindandi hér á landi.
Dómur Mannréttindadómstólsins í máli gegn íslenska ríkinu markar tímamót, segir lögmaður manns sem höfðaði málið. Dómstóllinn hafi slegið skjaldborg um sjálfstætt dómsvald í Evrópu. Tólf sambærileg mál bíða afgreiðslu dómstólsins.
Rúmlega ellefu milljarða króna halli verður á rekstri Reykjavíkurborgar á næsta ári. Borgarstjóri segir blásið til sóknar með auknum fjárfestingum. Oddviti Sjálfstæðisflokksins lýsir áhyggjum af skuldsetningu.
Nýtt snjóflóðahættumat fyrir Flateyri í Önundarfirði færir fjölda húsa inn á hættusvæði og alla höfnina sömuleiðis.
Heildarkostnaður Húnaþings vestra vegna kórónuveirufaraldursins er nú orðinn tæpar níutíu milljónir króna.
Í tillögum að nýjum sóttvarnareglum sem sóttvarnalæknir dró til baka var meðal annars heimilt að opna sundstaði aftur að hluta og að samkomubann yrði miðað við 20 manns í stað 10. Arnar Páll Hauksson sagði frá.
Styttri vinnuvika felur í sér aukin lífsgæði starfsfólks og stuðlar að hamingjusamara samfélagi segir á vef BSRB. Í samningum við ríki og sveitarfélög í vor var samið um styttingu vinnuvikunnar í allt að 36 tíma hjá dagvinnufólki en allt að 32 hjá vaktavinnufólki. Vinnan við útfærslu fyrir dagvinnufólk er langt komin, enda á hún að taka gildi um áramótin en í vor hjá vaktavinnufólki. Stytting vinnutímans er sögulegur áfangi segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sonju Ýr.
Brexit var auðvelda leiðin ef marka mátti boðskap leiðandi Brexit-sinna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sumarið 2016 um aðild Breta að Evrópusambandinu. Nú er einn þeirra við stjórnvöl þjóðarskútunnar og freistar þess að semja um viðskipti við ESB og daglega búist við fréttum af útkomunni. En af hverju hefur verið svona erfitt að semja um viðskipti til framtíðar? Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.