Spegillinn

Endurskoðun vinnulöggjafar og ræða Vladimírs Pútíns


Listen Later

Spegillinn 21. febrúar 2023
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Alþýðusamband Íslands hefur fengið frest til að afla gagna og vinna greinargerð í máli Ólafar Helgu Adolfsdóttur gegn ASÍ, Samtökum atvinnulífsins og íslenska ríkinu. Magnús Norðdahl, lögmaður ASÍ, segir niðurstöðu Landsréttar um að Eflingu beri ekki að afhenda félagatal sitt ekki athyglisverða í sjálfu sér. Niðurstaðan snúist fyrst og fremst um að ekki sé heimild til aðfarar.
Dómur Landsdóms sem gerði ríkissáttasemjara ókleift að láta greiða atkvæði um miðlunartillögu í deilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar kallar á endurskoðun vinnulögjafarinnar, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir eftir síðustu vendingar í dómstólum sé eins og ríkissáttasemjari hafi í raun og veru ekki möguleika á að gera neitt, annað en að halda fundi.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur dregið Rússa út úr kjarnorkuvopnasamkomulagi við Bandaríkin. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir Atlantshafsbandalagið aldrei hafa staðið styrkari fótum. Ekki standi þó til að ráðast á Rússland. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Guðmundur Guðmundsson er hættur sem landsliðsþjálfari karla í handbolta. Aðstoðarþjálfarar hans stýra liðinu í næstu verkefnum. Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ segir leit að framtíðareftirmanni Guðmundar ekki hafna. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman, Helga Margrét Höskuldsdóttir talaði við Guðmund Ólafsson.
Aldís Rún Lárusdóttir sviðsstjóri forvarnasviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir að ekki megi breyta notkun húsnæðis, eins og gert var með áfangaheimilið Betra líf, án leyfis. Haukur Holm talaði við hana.
Heilbrigðisráðherra vill breyta lögum svp refsiábyrgð hjá heilbrigðisstofnunum, fremur en einstaka heilbrigðisstarfsfólki, þegar alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu leiða til dauðsfalls eða stórfellds líkamstjóns, sé hægt að rekja atvikið til margra samverkandi þátta í starfsemi heilbrigðisstofnunar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá.
-----------
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór mikinn í dag í ávarpi sem er ýmist kallað stefnuræða eða yfirlit um stöðu þjóðarinnar. Hann réðst harkalega gegn vestrænum ríkjum - kenndi þeim um að hafa komið af stað ófriðinum í Úkraínu og staðið að stigmögnun þeirra síðastliðið ár. Ásgeir Tómasson tók saman, brot úr ræðu Vladimírs Pútíns, Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATÓ fer einnig nokkrum orðum um stöðuna í stríðinu, Yevgeny Popov, þingmaður á Dúmunni segi
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners