Spegillinn

Englandsdrottning látin


Listen Later

Elísabet Englandsdrottning er látin, hún var 96 ára og ríkti lengur en nokkur þjóðhöfðingi Englands. Heyrist í Huw Edwards, fréttaþul BBC. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir frá
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra tekur undir með formanni BHM um að skynsamlegt sé að hefja viðræður vegna komandi kjarasamninga sem fyrst. Hann er bjartsýnn á viðræðurnar fram undan en yfir 300 kjarasamningar eru lausir á næstunni. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttur talaði við hann.
Um þúsund jarð skjálftar hafa mælst við Grímsey frá því í nótt. Virknin hefur verið stöðug í allan dag. Sigríður Kristjánsdóttir náttúruvársérfræðingur segir þetta hefðbundna virkni. Urður Örlygsdóttir tók saman.
Leiðsögumenn með hreindýraveiðum lögðu til um miðjan ágúst að öll veiði yrði stöðvuð á einu helsta veiðisvæði hreindýra vegna þess hve fá dýr finnast á svæðinu. Ekki var orðið við því og nú leggja leiðsögumenn til að nær enginn kvóti verði þar á næsta ári. Rúnar Snær Reynisson sagði frá og talaði við Jón Hávarð Jónsson formann leiðsögumanna.
--------------
Milljörðum dollara verður varið til að styrkja varnir Úkraínu og grannríkjanna. Þúsundir almennra borgara hafa fallið í stríðinu við innrásarlið Rússa. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Igor Konashenkov, talsmaður varnarmálaráðuneytis Rússlands og Rosemary DiCarlo, aðstoðaraðalframkvæmdastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum.
Áhugi á landeldi hefur aukist mjög og það talið geta leyst helstu umhverfisvandamálin sem af sjóeldinu stafa en það hefur ekki gengið vandræðalaust. Hér eru í undirbúningi stór verkefni í landeldi. Í nýútkominni skýrslu Hafrannsóknastofnunar er fjallað um lax á landi. Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur og höfundur skýrslunnar, segir að álíka magn af fiski sé úr eldi og veitt er úr hafinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann.
Norðmenn búast við að gúrku- og tóamatakrísa verði skollin á í landinu þegar fyrir jól. Eigendur gróðurhúsa hafa ekki efni á að kynda hús sín og hafa þar ljós. Þessu veldur himinhátt orkuverð. Gísli Kristjánsson sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

148 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners