Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga virðist enn vera í fullum gangi. Frá því á miðvikudag hafa hátt í 40 skjálftar mælst stærri en 3. Prófessor í jarðeðlisfræði segir að síðasta árið hafi virknin verið á við það sem gerist á 6 til 10 ára tímabili.
Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir að Grindvíkingar séu tiltölulega rólegir miðað við aðstæður.
Fastafulltrúi Mjanmar hjá Sameinuðu þjóðunum biður alþjóðasamfélagið um aðstoð við að koma herforingjastjórn landsins frá völdum og endurreisa lýðræði.
Reglulegur akstur flugrútu Kynnisferða frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins hefst á ný skömmu eftir miðnætti. Komum til landsins hefur snarfækkað í faraldrinum og því er nokkuð um liðið síðan reglulegar ferðir voru í boði
Vonir standa til þess að íslensk bólusetningarvottorð verði tekin gild í Evrópu og víðar fyrir vorið. Nú eru þau einungis viðurkennd í Ungverjalandi. Arnar Páll Hauksson talar við Inga Steinar ingason.
Það virðist hafa dregið úr atvinnuleysi í febrúar samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar. Mikill munur er á atvinnuleysi eftir menntun. Ríflega 1200 viðskipta- og hagfræðingar eru án vinnu. Ragnhildur Thorlacius talar við Birnu Guðmundsdóttur.