Ræðismaður Póllands á Íslandi segist fá kvartanir í hverri viku frá fólki sem telji sig hafa verið hlunnfarið á íslenskum vinnumarkaði. Hann segir að það sárvanti aðstoð frá stéttarfélögum eða stjórnvöldum og gagnrýnir Vinnumálastofnun fyrir seinagang.
Vinnueftirlitið gerir mjög alvarlegar athugasemdir við aðbúnað við Reykjanesvirkjun í febrúar í fyrra, þegar starfsmaður fiskverkunar lést eftir að hafa orðið fyrir gasmengun.
Skipstjóri togarans Frosta sem kviknaði í norðvestur af landinu í fyrradag segir að eldur um borð sé það versta sem geti gerst. Skipið kom að bryggju í morgun og fór tæknideild lögreglunnar og fulltrúar tryggingafélagsins um borð. Ekki er enn ljóst hvað gerðist.
Búið er að skipa nýjan forseta Íraks og útnefna forsætisráðherra, en óvissa er um myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Bæta þarf aðflugsbúnað á Akureyrarflugvelli, byggja nýja flugstöð og gera nýtt flughlað til að völlurinn geti þjónað millilandaflugi.
Rannsókn á áhrifum stafræns sambýlis íslensku og ensku var kynnt á Skólamálaþingi KÍ í dag. Rætt verður við einn rannsakenda síðar í Speglinum.
Ísland ætlar sér að verða hluti af best tengda 5G-svæði heims - en fyrst þarf að taka fjölda ákvarðana og ráðast í viðamikla uppbyggingu
Umsjón. Arnhildur Hálfdánardóttir.