Spegillinn

Ferðamenn utan Schengen geta komið


Listen Later

Allt svæðið í kringum Fagradalsfjall er nú undir sem líklegt gossvæði. Skjálftavirkni hefur færst norðar frá því sem verið hefur síðustu daga. Þetta segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur.
Stjórn Arion banka dró til baka tillögu sína um að laun erlendra stjórnarmanna yrðu hækkuð. Lífeyrissjóðir sem eiga stóran hlut í bankanum mótmæltu hækkuninni og lögðu fram tillögu um óbreytt stjórnarlaun
Ákvörðun stjórnvalda um að taka upp litakóðunarkerfi á landamærunum 1. maí er ekki tekin í samráði við sóttvarnalækni.
Ferðamenn frá löndum utan Schengensvæðisins geta nú komið til Íslands ef þeir eru með gild bólusetningarvottorð.
Forstjóri Icelandair segir mun minni líkur á að félagið þurfi að draga á lánalínur með ríkisábyrgð ef ferðaþjónustan tekur við sér í sumar. Hann segir ákvörðun um að taka gild bólusetningarvottorð komufarþega utan Schengen svæðsins hafa mjög jákvæð áhrif.
Mikil óvissa er um niðurstöðu söluferlis kísilverksmiðjunnar í Helguvík. Arion banki hefur fært niður bókfært virði verksmiðjunnar en til greina kemur að rífa hana.
Vísindamenn rýndu í nýjar gervitunglamyndir og GPS mælingar á vísindaráðsfundi Almannavarna sem lauk nú síðdegis. Gögnin sýna að kvikugangurinn milli Nátthaga og Keilis á Reykjanesskaga sé að víkka en skjálftavirkni að færast norðar. Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur segir að þetta bendi til þess að eldgos geti brotist út á öllu svæðinu í kringum Fagradalsfjall, en ekki aðeins sunnan við það eins og talið hefur verið til þessa. Kristján Sigurjónsson talaði við Freystein.
Nú geta ferðamenn frá löndum utan Schengensvæðisins komið til Íslands ef þeir eru með bólusetningarvottorð. Ákveðið hefur verið að koma á innra eftirliti á landamærunum og til stendur að opna sóttvarnahús á Keflavíkurflugvelli. Arnar Páll Hauksson talaði við Sigurgeir Sigmundsson.
Boris Johnson forsætisráðherra Breta kynnti í dag heildarstefnu í öryggis-, varnar- og utanríkismálum, sem hafði dregist að kynna. Johnson hefur talað um ,,hnattrænt Bretland? sem utan Evrópusambandsins horfði meir til annarra heimshluta. Eins átti ræðan nú að vera ein sú mikilvægasta frá lokum kalda stríðsins. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners