Fjórir af þeim fimm frambjóðendum sem leit út fyrir að kæmust á þing, áður en atkvæði í Norðvesturkjördæmi voru talin aftur, hafa kært kosninguna. Frambjóðandi Pírata skilaði inn kæru síðdegis í dag.
Mikil uppgræðsla bíður ábúenda á bænum Björgum í Köldukinn eftir skriðuföllin þar fyrr í vikunni. Þar hefur mestöll hlíðin ofan við bæinn hlaupið fram.
Rafskútuakstur og áfengis- og vímuefnaneysla fara ekki saman. Þetta segir yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans. Fjöldi rafskútuslysa hefur hátt í tvöfaldast á milli sumra. Flestir hinna slösuðu eru fullorðnir.
Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að gervihnattamyndir sem bárust í dag sýni enga aflögun á Keilissvæðinu.
Leiðtogar Evrópusambandsríkja höfnuðu í dag að ákveða hvenær löndin á vestanverðum Balkanskaga fá aðild að sambandinu.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna sitja nú á rökstólum og freista þess að koma saman nýjum stjórnarsáttmála. Ljóst er að loftlagsmálin eru eitt af því sem rætt er við stjórnarmyndunarborðið. Ef Ísland ætlar að standa við skuldbindingar sínar í Parísarsamningnum verður að bretta hressilega upp ermar. Arnar Páll segir frá og það heyist í oddvitum flokkanna sem buðu fram í Suðvesturkjördæmi.
Óvissan um afdrif kínverska fasteignafélagsins Evergrande undanfarnar tvær vikur hefur valdið talsverðum titringi í efnahagskerfi Kína, sem er það næst stærsta í heiminum. Og ekki aðeins sjást áhrifin á efnahag Kínverja, heldur allrar heimsbyggðarinnar. Kristján Sigurjónsson talar við Snæfríði Grímsdóttur.
Í könnun sem gerð var meðal félagsmanna í Sameyki kom í ljós að innan við helmingur svarenda eða um 40% vann heima í faraldrinum og af þeim sem það gerðu hafði meirihlutinn eða rúm 60% ekkert val. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Þórarinn Eyfjörð.