Spegillinn

Forsætisráðherra vill breyta stjórnarskrá


Listen Later

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ætlar að leggja fram frumvarp um breytingar á stjórnarskrá. Í því verður vikið að auðlindum í þjóðareign, umhverfis- og náttúruvernd, íslenskri tungu, forseta og framkvæmdavaldi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana.
Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni var í dag dæmdur til sektar og sviptur skipstjórnarréttindum í fjóra mánuði. Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri á Vestfjörðum segir að þar með sé málinu lokið. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann.
Dauðsföll af völdum COVID-19 eru orðin rúmlega tíu þúsund í Svíþjóð. Engin teikn eru á lofti um að úr þeim dragi á næstunni. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli eru ósáttir við að vera ekki skilgreindir í forgangshóp fyrir bólusetningu gegn COVID-19. Guðbjörn Guðbjörnsson, yfirtollvörður segir vettvangsmenn tollsins vera áhyggjufulla vegna nándar við veiruna á landamærunum. Birgir Þór Harðarson talaði við hann.
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu skoðar hvort rétt sé að kanna sjúkrasögu þeirra sem taka þátt í fjöldabólusetningu, og hvort þeir hafi áður fengið ofnæmisviðbrögð við bólusetningu. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman.
Eitt ár er liðið frá því snjóflóð féllu í Önundarfirði og Súgandafirði á Vestfjörðum. Flóðin ollu talsverðu tjóni. Á Flateyri fóru þau yfir varnargarða, kaffærðu hús og sökktu sex bátum í höfninni. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við Hrefnu Valdemarsdóttur og Steinunni Einarsdóttur.
------------
Utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um nærri 80% í fyrra. Í apríl fóru aðeins rétt rúmlega 300 Íslendingar til útlanda miðað við yfir 60 þúsund á sama tíma árið 2019. Arnar Páll Hauksson tók saman og talaði við Þórunni Reynisdóttur.
Illa hefur gengið að koma böndum á kórónuveirufaraldurinn í víða um heim, ekki síst þar sem hið svokallað breska afbrigði hefur náð fótfestu. Staðan í útlöndum endurspeglast í fjölgun smita á landamærunum og því verða Íslendingar að halda vöku sinni. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn flugstöðvardeildar Lögreglunnar á Suðurnesjum ræddu um aðerðir á landamærum og lagastoð þeirra á almannavarnafundi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segja að nýjar reglur verði kynntar á morgun og endurskoðun sóttvarnalaga verði unnin eins hratt á Alþingi og unnt er . Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Vaxandi óánægju gætir í Noregi með framgöngu stjórnvalda við bólusetningar gegn Covid-19 veirunni. Norðmenn hafa ákveðið að keppa ekki við aðrar þjóðir um að ka
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners