Föstudagur 27. febrúar
Vikuskammtur: Vika 9
Gestir að þessu sinni eru þeir: Óli Dóri, plötusnúður og athafnamaður Davíð Roach, fjölmiðlamaður Þorsteinn V. Einarsson, karlmaður og Bragi Páll, rithöfundur. Í vikunni sem leið var ýmislegt að frétta. Eins og td: Viðtal Þóru Tómasdóttur við Margrét Löf, sem varð föður sínum að bana, flokkarnir héldu áfram að birta lista fyrir sveitastjórnir, dóru björt hafnað af samfylkingu, lögreglustjórinn á Vestfjörðum, Trump, Epstein, Gaza, Íran, Prins Póló og Evrópusambandið, peptíð og áhrifavaldar, Mannréttindastjóri Evrópuráðsins gagnrýndi barnafangelsi Viðreisnar og allskonar fleira sem okkur dettur í hug að ræða.