Hugsanlegt er að gos hefjist á Reykjanesskaga á næstunni. Merki um gosóróa mældist á þriðja tímanum í dag í fyrsta sinn frá því að jarðskjálftahrinurnar hófust fyrir viku.
Sérfræðingar Jarðvísindastofnunar settu upp dróna í dag til að kanna hvort kvika væri sjáanleg en talið er að hún gæti verið að leita leiðar upp á yfirborðið sunnan Keilis.
Komi til eldgoss á Reykjanesskaga verða áætlanir vegna eldgosa og öskufalls virkjaðar á Keflavíkurflugvelli.
Ekkert lát hefur verið á jarðskjálftum í vikunni og svo urðu þessar breytingar á þriðja tímanum í dag að greina mátti gosóróa á Reykjanesskaga. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Bergljót Baldursdóttir talar við Freystein Sigmundsson jarðeðlisfræðing.