Viðbragðsáætlun stjórnvalda hefur verið virkjuð. Forsætisráðherra segir koma til greina að styðja við ferðaþjónustuna með sérstökum aðgerðum.
Kynnisferðir hafa ákveðið að segja upp 59 starfsmönnum. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi síðdegis.
Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna öflugrar jarðskjálftahrinu í Öxarfirði sem hefur staðið yfir síðan á laugardaginn.
Forstöðumaður greiningardeildar Capacent, segir að staða WOW air ætti ekki að koma neinum á óvart miðað við það sem á undan er gengið.
Hagfræðingur segir of miklar launahækkanir í núverandi efnahagsástandi leiða til aukins atvinnuleysis og hugsanlega til verðbólgu og vaxtahækkana.
Fjórir liðsmenn Sigur Rósar hafa verið ákærðir fyrir að telja ekki fram tekjur eða arðgreiðslur.
Í síðari hluta Spegilsins ræða Arnhildur Hálfdánardóttir og Arnar Páll Hauksson við
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, Katrínu Ólafsdóttur, lektor í Hagfræði, Þórhildi Elínardóttur, upplýsingafulltruá Samgöngustofu og Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, um áhrif brotthvarfs WOW air.