Spegillinn

Göngufólks leitað við gosstöðvar


Listen Later

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Björgunarsveitir af suðvesturhorninu voru kallaðar út síðdegis vegna göngufólks við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga. Fólkið hunsaði tilmæli og fór af stað þrátt fyrir að gönguleiðir í Meradali hafi verið lokaðar vegna veðurs. Það fannst á sjötta tímanum. Haukur Holm ræddi við Ásdísi Lúðvíksdóttur, úr björgunarsveitinni Björgu á Eyrarbakka og Sofiu, ítalskan ferðalang.
Aukafundur verður í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í kvöld vegna átaka á Gaza. Vopnahlé Ísraelsmanna og Palestínumanna hefur haldið frá því gær. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Einstök glerperla, hvít rauð og blá fannst við fornleifauppgröft á Seyðisfirði. Hún er talin vera um þúsund ára gömul. Markús Þórhallsson ræddi við Ragnheiði Traustadóttur, fornleifafræðing.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggur til að sveitarstjórn Múlaþings hefji viðræður við innviðaráðuneyti um frekari uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar í ljósi jarðhræringa á Reykjanesskaga, Óðinn Svan Óðinsson talaði við Vilhjálm Jónsson, formann heimastjórnarinnar.
Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslara Þýskalands, verður ekki vikið úr þýska Jafnaðarmannaflokknum þrátt fyrir náin tengsl við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexander Kristjánsson tók saman.
--------------
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að bíða þurfi eftir niðurstöðum rannsókna áður en Hvassahrauni sé ýtt út af borðinu sem mögulegu flugvallarstæði. LJóst sé að styðja verði við uppbyggingu bæði á Akureyrar- Egilsstaða- og Reykjavíkurflugvelli í ljósi jarðhræringa á Reykjanesi sem gætu haft áhrif á millilandaflug. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sigurð Inga.
Hátt orkuerð í Noregi veldur þar pólitískum skjálftum, Gísli Kristjánsson sagði frá, heyrist í Jonasi Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs.
Með auknum fjölda gervihnatta og mannaðra og ómannaðra geimferða eykst geimruslið og þó mest af því sem fellur til jarðar endi í sjó aukast stöðugt líkur á að eitthvað lendi á landi. Ásgeir Tómasson segir frá þriggja metra bút úr SpaceX eldflaug sem ástralskur bóndi fann í haga nýlega. Brot úr viðtali við Brad Tucker stjarneðlisfræðing.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners