Miðvikudagur 3. júní
Græna borðið 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing
Varmá, vatn og virðing verða rædd við Græna borðið í dag. Heilbrigðiseftirlitið, vatnalíffræðingur og íbúi við Varmá telja að mengunin í ánni sé brot á lögum og afleiðing óvirðingar gagnvart náttúrunni, en ekki umhverfisslys. Þörf sé á miklu betri umgengni við vatn á Íslandi, eins og náttúruna almennt, en ferskvatn, ár og votlendi séu undir álagi vegna slæmrar umgengni við framkvæmdir og hætta sé á varanlegu tjóni. Hugsa þurfi til framtíðar, efla fræðslu og eftirlit. Umsjón hefur Björg Eva Erlendsdóttir.