Miðvikudagur 25. mars
Græna borðið - 7. þáttur: Deilt um vindorkuver
Sveitarstjórn Dalabyggðar er hætt að vinna að því að vindorkuver franska fyrirtækisins Qair rísi á Laxárdalsheiði. Sveitungum líst ekki vel á orkuver á heiðinni. Skipulagsstofnun gaf verkefninu falleinkunn en Qair er ekki af baki dottið og fer fram á nýtt mat. Sveitarstjórn kallar eftir skýrri og nákvæmri vindorkustefnu frá stjórnvöldum fyrir náttúru og samfélag. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir stjórna þættinum.