Spegillinn 2. nóvember 2018
Fréttir:
Bæði manninum og konunni, sem voru í gærkvöld úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald vegna brunans á Selfossi, var gert að sæta einangrun.
Enn á eftir að semja um réttindi borgara sem hyggja á búsetu í Bretlandi eftir Brexit. Utanríkisráðherra segir að skilaboð breskra stjórnvalda gefi góð fyrirheit.
Meirihluti fulltrúa Kristilega þjóðarflokksins í Noregi greiddi atkvæði með því, á aukalandsfundi flokksins, að ganga til liðs við stjórn Hægriflokksins, Framfaraflokksins og Venstre, í stað þess að mynda nýja stjórn með flokkum til vinstri. Ríkisstjórn Noregs heldur því velli.
Lengri umfjallanir:
Á næstu árum eiga að rísa 500 hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fólk á níu lóðum í Reykjavík. Sumar hugmyndir gera ráð fyrir að deilibílafloti verði hluti af sameign húsanna. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Óla Örn Eiríkisson, formann starfshóps borgarinnar um verkefnið.
Gustl Mollath lenti í harðvítugri deilu við konu sína um aldamótin og sakaði hana og bankann hennar um meiriháttar samsæri og risavaxin skattsvik. Kerfið brást harkalega við, hann var metinn ósakhæfur, geðsjúkur samsæriskenningasmiður og var lokaður inni á geðdeild í sjö ár. Þýskir fjölmiðlar fóru seint og um síðir að skoða málið og í ljós kom að ekki stóð steinn yfir steini í dómsmeðferðinni. Nú virðist flest sem hann benti á hafa verið rétt og tengist risaskattsvikamáli sem flett var ofan af um daginn. Pálmi Jónasson segir frá.
Fyrst Danske Bank, nú Nordea - báðir þessir norrænu bankar eru í rannsókn bæði heima og heiman vegna peningaþvættis og sagan líklega enn langt í frá öll. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um þetta.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon