Yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir ekki ólíklegt að samræmdar aðgerðir lögreglu, sem fram fóru í nítján löndum í gær, hafi áhrif á starfsemi glæpahópa hér á landi.
Forsætisráðherra var þráspurður um stöðu hálendisfrumvarpsins á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að Vinstri grænir hafi beðið dapurlegan ósigur í málinu.
Gosmóða hefur sést víða á Norðurlandi í dag. Mengunin er ekki yfir hættumörkum. Gosmóða hefur ekki farið yfir svo stórt svæði frá því að gosið hófst.
Áfrýjunardómstóll staðfesti í dag ævilangan fangelsisdóm yfir Ratko Mladic [Mladits], fyrrverandi æðsta yfirmanni hers Bosníu-Serba.
Neytendasamtökin áætla að vatnsveitur landsins hafi ofrukkað viðskiptavini sína um milljarða króna frá því ný lög um vatnsveitur tóku gildi árið 2016.
Rífandi gangur er í íslenskri kvikmyndagerð. Kvikmyndasumarið er komið, segir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Hraunið í gosinu í Fagradalsfjalli hagar sér ekki eins og í kennslubókunum, segir Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjallafræði. Í gosinu hafa myndast allar tegundir basaltshrauns sem til eru á landi, án þess að framleiðni í gosinu hafi breyst að nokkru marki. Hann segir að vísindamenn hafi margt lært á eldgosinu. Ragnhilfur Thorlacius talar við Þorvald Þórðarson.
Þriðji áfangi rammaáætlunar verður ekki afgreiddur fyrir þinglok. Þingsályktunartillaga um um hann hefur þrisvar sinnum verði lögð fram á Alþingi frá því að umhverfisráðherra fékk rammaáætlun í hendur fyrir rúmum 4 árum. Arnar Páll Hauksson talar við Vilhjálm Árnason. Heyrist í Sigrúnu Magnúsdóttur, Björt Ólafsdóttur og Guðmundi Inga Guðbrandssyni.
Skattareglur, sem gera stórfyrirtækjum kleyft að færa hagnað í skattaskjól, hafa lengi verið þyrnir í augum baráttufólks fyrir réttlátari sköttum. Covid hefur ýtt undir skilning á samhjálp og á laugardaginn var gerðu fjármálaráðherrar G7-ríkjanna samkomulag sem miðar að því að að afnema skattaskjól. Róttæk fyrirætlun þó það eigi enn eftir að koma í ljós hvað mun nákvæmlega felast í þessum nýju reglum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.