Heilsuvarpid

Heilsuvarpid

By Ragga NagliHealth & Fitness
Download on the App Store

Heilsuvarpid episodes

  • #72 Halldóra Skúladóttir - Breytingaskeiðið
    Gestur þáttarins er Halldóra SKúladóttir hjá Kvennaráð.is. Hún er sprenglærð í breytingaskeiði kvenna, sjúkraliðamenntun og dáleiðari. Halldóra er hafsjór af fróðleik um breytingaskeiðið, og markmið hennar er að fræða, upplýsa og uppræta fordóma. Takið fram penna og stílabók, því þið eruð að fara að glósa hérna.
    @kvennarad.is
    Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
    @nowiceland
    @netto.is
    58 min
  • #71 Sólveig Sigurðardóttir Crossfitstjarna
    Í þessum þætti tala ég við Sólveigu Sigurðardóttur, Crossfitstjörnu, en hennar frægðar Sól reis hratt síðasta ár þegar hún stóð sig stórkostlega í undanúrslitunum í London og tryggði sig inn á Crossfitleikana í einstaklingskeppni.
    Sólveig er einlæg, hlý, hreinskilin og í alla staði yndisleg manneskja. Hún opnar sig um reynsluna af Crossfit keppnum, að æfa með háklassa keppendum á Mallorca, og hvernig hún er meðvituð um sitt neikvæða innra sjálfstal.
    Einlægt og opið viðtal við stórkostlega konu sem á eftir að ná langt í sportinu.
    Sólveig á Instagram @solasigurdardottir
    Heilsuvarpið er í boði:
    NOW á Íslandi @nowiceland
    Nettó verslanir / Samkaup @netto.is
    1 hr 16 min
  • #70 Daníel Gunnarsson - frá magaermi í vaxtarrækt
    Daníel Gunnarsson fór í magaermi í maí 2021. Í nóvember 2022 stóð hann helskafinn á sviði að keppa í vaxtarrækt og lét þar gamlan draum rætast. Draumur sem hann hélt að yrði alltaf bara óraunhæf óskhyggja. Ekki nóg með að fara á svið, heldur lenti hann í öðru sæti. Ótrúleg saga af dugnaði, elju, þrautseigju, jákvæðni og skynsemi hjá okkar manni.
    Heilsuvarpið er rækilega styrkt af NOW á Íslandi og Nettó
    @nowiceland
    @netto.is
    1 hr 3 min
  • #69 Sara Sigmunds Crossfit drottning
    Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Crossfit drottning, sálfræðinemi, verðandi einkaflugmaður. Sara er hlý, kærleiksrík, fyndin og einlæg.
    Hún opnar sig um hvernig hún komst andlega í gegnum meiðslin á hnénu, hversu mikilvægt er að hrósa, og hvernig eitt hrós var þúfan sem velti þungu hlassi á hennar Crossfit ferli. Ótrúlega skemmtilegt viðtal við stórkostlega konu.
    Styrktaraðilar Heilsuvarpsins
    Nettó @netto.is
    Now á Íslandi @nowiceland
    1 hr 9 min
  • #68 Sveinn Gunnar Björnsson kírópraktor
    Sveinn Gunnar Björnsson eða Svenni Kíró er kírópraktor hjá Kíró Lindum. Hann lærði í Atlanta Georgia, og glímdi sjálfur við bakmeiðsli ungur að árum. Svenni er gangandi fróðleiksmoli um allt sem viðkemur líkamsstöðu og beitingu í æfingum og daglegu lífi.
    Hann er líka einn af þremur frumkvöðlum sem settu á markað Kuldi Sleeve sem er kæliermi fyrir hné, olnboga og fleiri liði.
    Kuldi sleeve fæst t.d í Eirberg.
    @kirolindum
    @kuldi.cryo
    Heilsuvarpið er í boði Nettó og Now á Íslandi
    @netto.is
    @nowiceland
    1 hr 3 min
  • #67 Erlendur Rafnkell Crossfit Fenrir Elite
    Í þessum þætti tala ég við Ella eiganda Fenrir Elite á Höfn í Hornafirði. Elli á magnaða sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur glímt við þunglyndi kvíða, og fíkn en vann sig útúr því og stofnað Crossfit stöð sem fagnar mikilli velgengni. Sannarlega frumkvöðull sem á framtíðina fyrir sér, bæði sem elítu Krossfittari og slyngur viðskiptamaður. Skemmtilegt spjall við kláran og duglegan mann.
    Heilsuvarpið er í boði NETTÓ verslananna og NOW á Íslandi
    @nowiceland
    @netto.is
    1 hr 36 min
  • #66 - Gústi Hermanns - ADHD á fullorðinsárum
    Gústi Hermanns er verkfræðingur sem glímdi við kulnun og í þvi ferli greindist hann með ADHD og það opnaði augu hans fyrir ýmsu úr æskunni. Hér segir hann frá einkennunum og hvernig er að vera með ADHD sem fullorðinn.
    Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og Nettó
    @nowiceland
    @netto.is
    1 hr 11 min
  • #65 - Friðrik Agni Árnason dansari og hamingjusprengja
    Friðrik Agni Árnason er dansari og annar eigandi Happy studios.
    Hér talar hann um lífshlaup sitt, starfið sitt og opnar sig á einlægan hátt um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir snemma á lífsleiðinni og hvernig hann hefur unnið úr því áfalli.
    Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó
    @fridrikagni
    @nowiceland
    @netto.is
    1 hr 20 min
  • #64 Hinrik Páls - Lyftingar og mataræði
    Hinrik Pálsson situr í stjórn Kraftlyftingasambands Íslands og er með næringarþjálfunargráðu frá Working against gravity.
    Hann veitir næringarráðgjöf hjá Fiercely fuelled nutrition.
    Hinrik hefur síðustu ár keppt í kraftlyftingum bæði hér heima og erlendis, og er einnig að klára nám til að fá þjálfararéttindi í greininni.
    Hann er með margar háskólagráður, BA í félagsfræði, MA í afbrotafræði, M.Sc í viðskiptafræði og starfaði í lögreglunni, sérsveitinni og hjá sérstökum saksóknara áður en hann sneri sér að bankastörfum.
    Allt um hvernig sé best að næra sig fyrir, á meðan og eftir lyftingaæfingar í þessum þætti.
    @hinrikpals
    @fiercelyfuelednutrition
    Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi
    @netto.is
    @nowiceland
    1 hr 4 min
  • #63 - Anna Claessen- Kulnun, streita, zumba og Jallabína
    Anna Claessen glímdi við kulnun í starfi og persónulega lífinu en komst uppúr því með ýmiss konar aðstoð. Nú er hún að fara af stað með netnámskeið í streitustjórnun. Anna er dansari, fjölmiðlafræðingur, markþjálfi,einkaþjálfari, skemmtikraftur og prófessjónal peppari.
    Hún kennir Zumba og Jallabína og rekur Happy studios ásamt Friðriki Agna Árnasyni.
    @happystudiosiceland
    Heilsuvarpið er í boð Now á Íslandi og NETTÓ
    @NOWICELAND
    @NETTÓ.IS
    1 hr 10 min

About Heilsuvarpid

From the publisher's feed

Podcast by Ragga Nagli

More shows like Heilsuvarpid

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

13 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Auðnast by Ghost Network®

Auðnast

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms by heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

4 Listeners