Spegillinn

Hlutabótaleiðin úr sögunni


Listen Later

Lægir og styttir upp í nótt, austlæg átt 5-10 m/s á morgun, bjart með köflum og þurrt. Gengur í austan 10-15 sunnantil annað kvöld með dálítilli rigningu á þeim slóðum. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast suðvestanlands.
Landspítalinn gaf í upphafi óljós svör um hvort hann hefði burði til þess að rannsaka leghálssýni í tengslum við krabbameinsskimanir og því var gerður samningur við danskt sjúkrahús.
Veitingarstaðir mega hafa opið til klukkan eitt samkvæmt nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á þriðjudaginn.
Ekkert samkomulag liggur enn fyrir á Alþingi um afgreiðslu mála fyrir þinglok.
Verðandi forsætisráðherra Ísraels segir að tveggja og hálfs árs stjórnarkreppu sé loksins lokið. Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar var undirritaður í dag.
Kristján níundi, Hannes Hafstein og Jón Sigurðsson eru að fara í viðgerð. Vinna hefst við stytturnar tvær við Stjórnarráðið eftir helgi og verður Jón forseti tekinn fyrir í kjölfarið.
Hlutabótaleiðin sem hefur verið í boði frá því í mars í fyrra rann sitt skeið um síðustu mánaðamót. Rúmlega 36.500 launamenn nýttu sér úrræðið og yfir 6.700 fyrirtæki. Heildarbætur sem voru greiddar námu tæpum 28 milljörðum króna. Heyist í Birnu Guðmndsdóttur, Drífu Snædal og Halldóri Benjamín Þorbergssyni. Arnar Páll Segir frá.
Boris Johnson forsætisráðherra Breta tekur á móti þjóðarleiðtogum hinna G7 landanna um helgina, meðal annars til að sýna styrk Bretlands utan ESB. En á þessum fyrsta fundi forsætisráðherra við Joe Biden Bandaríkjaforseta stelur Brexit-deila Breta við ESB athygli breskra fjölmiðla frá alþjóðamálunum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Stjórnmálamenn reyna að ná til kjósenda um Internetið. Þeir nýta sér fjölbreytt úrval af miðlum á netinu til að koma boðskap sínum út. Opinberar stofnanir eru horfnar inn á Netið. Bankarnir líka. Þetta er enn meira áberandi nú á tímum pestarinnar en var áður. Í Noregi er jafnframt bent á að stór hópur fólks, jafnvel milli 10 og 20 prósent landsmanna, hafa engin not af tölvum og Neti. Þetta er nú orðið að kosningamáli. Gísli Kristjánsson sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners