Veirufræðideild Landspítala staðfesti í dag nýtt mislingatilfelli, það fimmta á rúmlega hálfum mánuði.
Verkfall 700 hótelþerna hjá stéttarfélaginu Eflingu hófst klukkan tíu í morgun og stendur til miðnættis. Verkfallsverðir voru við störf á hótelum víða um borgina í dag. Framkvæmdastjóri Eflingar segir eitthvað hafa verið um verkfallsbrot, verkfallið hafi þó farið vel fram að mestu leyti.
Framkvæmdastjóri SA segir óskandi að þau verkalýðsfélög sem stigu frá samningaborðinu komi að því á ný.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir óvíst að landið fari nokkru sinni úr Evrópusambandinu ef samningur um aðskilnaðinn verður felldur í þinginu í næstu viku.
Litlar sem engar breytingar hafa orðið á atvinnuþátttöku kvenna í heiminum á síðustu 27 árum. Hún hefur aðeins aukist um tvö prósent og atvinnuþátttaka þeirra er enn 26 prósentustigum minni en karla.
___
Verkfall 700 hótelþerna hjá stéttarfélaginu Eflingu hófst klukkan tíu í morgun og stendur til miðnættis. Arnar Páll Hauksson ræddi við fólkið sem fór í verkfall í dag, sem flest er af erlendum uppruna.
Eitt af aðalmarkmiðum rannsóknarinnar Áfallasögu kvenna er að kanna hvernig áfallastreita hefur áhrif á líkamlega líðan til framtíðar. Þetta segir prófessor í Læknadeild Háskóla Íslands, sem vinnur að rannsókninni. Gögnin sem fengust geti verið efniviður rannsókna næstu ára og jafnvel áratuga. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir ræðir við Örnu Hauksdóttur.
Sænskur maður sem játaði að hafa keypt vændi, hefur verið ákærður fyrir nauðgun. Kynlíf án samþykkis er ofbeldi, samkvæmt samþykkislögum sem tóku gildi í Svíþjóð í fyrra. Kári Gylfason segir frá.