Ríkisstjórnarflokkarnir næðu ekki meirihluta á þingi yrði gengið til kosninga nú, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups.
Skylda er að vera með ökuljós kveikt bæði að aftan og fram, rafvespur eru skráningarskyldar, heimilt er að banna akstur vegna mengunar og neita má fíklum um ökuskírteini, samkvæmt nýjum umferðarlögum.
Einungis um helmingur þeirra fyrirtækja og stofnana sem áttu að vera komin með jafnlaunavottun um áramótin hefur fengið slíka vottun.
Margir strengdu áramótaheit um áramótin, sumir þau sömu og í fyrra.
Austurríki á að verða forysturíki í umhverfismálum í Evrópu, samkvæmt sáttmála sem ný ríkisstjórn landsins kynnti í dag.
Það gæti stefnt í almennar kosningar árlega næstu þrjú ár. Ef sitjandi forseti fær mótframboð verða forsetakosningar í júní, svo Alþingiskosningar á næsta ári og sveitarstjórnarkosningar 2022.
Embætti ríkislögreglustjóra telur hátt hlutfall innflytjenda í ákveðnum hverfum auka hættuna á því að hér verði til viðkvæm svæði eða gettó þar sem glæpagengi vaði uppi. Þetta má ráða af nýrri skýrslu embættisins um hugsanlegar áskoranir sem lögregla gæti staðið frammi fyrir í náinni framtíð.