Landsvirkjun spáir því að raforkuframleiðsla aukist mikið samhliða bráðnun jökla fram á miðja þessa öld.
Innflytjendur gefa íslenskukennslu falleikunn. Í nýrri könnun kemur fram að um 60 prósent innflytjenda eru óánægð með kennsluna.
Hæstiréttur ætlar að taka til meðferðar mál Freyju Haraldsdóttur gegn Barnaverndarstofu.
Á annað hundrað þúsund Rússar hafa skrifað undir áskorun um að farþegaþotur af gerðinni Sukhoi verði kyrrsettar meðan rannsakaðar verði orsakir þess að ein þeirra fórst um síðustu helgi. Aeroflot flugfélagið aflýsti í dag nokkrum ferðum flugvéla af þeirri gerð.
Strætó þyrfti að ráðast í framkvæmdir fyrir allt að fjögur hundruð milljónir króna til þess að geta fjölgað metanstrætisvögnum.
Um 60% innflytjenda eru óánægð með þá íslenskukennslu sem er í boði hér á landi, samkvæmt nýrri könnun. Lítil fylgni er milli þess hversu vel innflytjendur telja sig geta talað íslensku og hversu mörg íslenskunámskeið þeir hafa sótt. Nærri helmingur innflytjenda telur íslenskukunnáttu sína slaka. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Lara Wilhelmine Hoffmann og Eyjólf Sturlaugsson.
Fararstjórar í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fá á hverju ári þjálfun í því hvernig á að bregðast við þegar sprengja springur eða vopnaðir menn komast inn á svæðið, segir Jónatan Garðarsson, sem fylgt hefur íslensku þátttakendunum sextán sinnum. Bergljót Baldursdóttir talat við Jónatan.
Anna Kristín Jónsdóttir segir frá norska þjóðbúningnum og því að konur sem mótmæla lokun fæðingardeilda í Norður Noregi hafa klæðst þjóðbúningum í mótmælunum.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tækinmaður Ragnar Gunnarsson.