Spegillinn

Kjaradeila Eflingar við SA og breytingar á útlendingalögum.


Listen Later

Spegillinn 24. janúar 2023.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela telur að starfsmenn þar samþykki ekki verkfallsboðun Eflingar.Bjarni Pétur Jónsson talaði við hann.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra harma bæði að verkfall þurfi til að lausnar kjaradeilu. Þau vona að deila Eflingar og SA leysist fljótt en eru ekki bjartsýnir á að svo verði. Kristín Sigurðardóttir ræddi við þau.
Víða er snjó sem skafinn er af götum sturtað beint í hafnir. Í höfuðborginni er það bannað og Umhverfisstofnun telur að skerpa þurfi á verklagi um hvenær og hvar sé öruggt að fara með snjó útí sjó. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Andri Teitsson formann umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar og Katrínu Sóleyju Bjarnadóttur frá Umhverfisstofnun.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur miklar áhyggjur af aukningu á notkun unglinga á nikótínpúðum, það hafi verið ákvörðun Alþingis að seinka gildistöku reglna sem draga úr sýnileika nikótínpúða á sölustöðum. Kristín Sigurðardóttir talaði við hann.
Hafíss hefur orðið vart undan Vestfjörðum síðustu daga. Þó er nokkuð minna af honum en búist var við, að sögn Ásgríms L. Ásgrímssonar framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar.
Stjórnarandstæðingar í Svíþjóð krefjast afsagnar nánasta samstarfsmanns Ulfs Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu er sakaður um ólöglegar álaveiðar. Pétur Magnúson sagði frá.
Leikstjórinn Sara Gunnarsdóttir fékk í dag tilnefningu til Óskarsverðlauna. Þórdís Arnljótsdóttir talaði við hana.
--------------
Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er umdeilt. Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar og menntamálanefndar segir frumvarpið til bóta, en Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata segir það fara gegn stjórnarskrárvörðum réttindum fólks. Bjarni Rúnarsson talaði við þær.
Það bjátar sitthvað á í Bretlandi um þessar mundir. Efnahagsvandi, verkföll opinberra starfsmanna, róstusamt á stjórnarheimilinu, umhleypingar í veðri og öðru hvoru berast fregnir af hrakningum ólöglegra innflytjenda á Ermarsundi. Ásgeir Tómasson sagði frá, heyrist í Töru Pownall, húsmóður í Doncaster og Söruh Chambers sem báðar spara rafmagnið.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

88 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

8 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

77 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

9 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners