Starfsgreinasambandið og SA funduðu í dag og er annar fundur boðaður á morgun.
Varaformaður Viðreisnar segir að mistök ríkisstjórnarinnar í útspili hennar í gær séu mistök í væntingastjórnun, það sé aldrei hlutverk ríkisstjórnar að leiða kjaraviðræður. Formaður Flokks fólksins segir að nú eigi ekki bara að skattleggja fátækt heldur líka sára fátækt.
Óánægja er meðal þingmanna Vinstri grænna með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra, að leyfa hvalveiðar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur formlega farið fram á að sjávarútvegsráðherra mæti á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis til að ræða ákvörðunina.
Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um að friðlýsa Dranga á Ströndum sem óbyggð víðerni. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Árneshrepp.
Lengri fréttapistlar:
Verkalýðsfélögin sem hóta að slíta viðræðum við Samtök atvinnulífsins eru með tilbúna aðgerðaáætlun ef til verkfalla kemur. Gert er ráð fyrir staðbundnum verkföllum og að þeir sem fara í verkfall haldi fullum launum. Arnar Páll Hauksson ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson og Halldór Benjamín Þorbergsson.
Það þarf þorp til að ala upp barn, en það þarf tvö þorp til að ala upp tvítyngt barn. Þetta segir brúarsmiður hjá Miðju máls og læsis og filippseyskur móðurmálskennari. Tæplega fimmtungur barna í leikskólum Reykjavíkur talar tvö eða fleiri tungumál. Brúarsmiðir veita kennurum og foreldrum þessara barna ráðgjöf. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Önnu Mariu Milosz, móður tvítyngds barns og Kriselle Lou Suson Jónsdóttur og Magdalenu Elísabetu Andrésdóttur, brúarsmiði hjá Miðju máls og læsis.
Íþróttaþvætti er nýtt hugtak yfir það þegar vafasamir karakterar vilja baða sig í ljóma íþrótta og hvítþvo laskað orðspor. Pálmi Jónasson.