Spegillinn

Kjarasamningur SGS, sigurvíma Argentínu og ADHD í Noregi


Listen Later

Vonskuveður hefur sett samgöngur úr skorðum í dag. Ófært er víðast hvar á Suðurlandi, Suðurnesjum og vestur á land. Flugsamgöngur eru í flækju vegna veðursins. Áframhaldi veðurofsi er í kortunum.
Ferðamaður sem er strandaglópur á Keflavíkurflugvelli segir Icelandair ekkert hafa aðstoðað ferðalanga sem séu fastir þar. Forstjóri flugfélagsins segir stöðuna í millilandaflugi afar krefjandi. Allt verði gert til að koma farþegum á áfangastaði sína.
Hæstiréttur Svíþjóðar hefur hafnað því að tyrkneskur blaðamaður verði framseldur til Tyrklands. Stjórnvöld í Ankara hafa gert framsal hans og annarra að skilyrði til að samþykkja aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu.
-----
Formaður Starfsgreinasambandsins fagnar samþykkt 17 félaga innan þess á nýjum kjarasamningi. Þar hafi náðst að verja kjör verkafólks í landinu. Hann harmar að formaður Eflingar hafi beitt sér gegn samningnum en félagsmenn hafi sagt skoðun sína. Í hádeginu lauk atkvæðagreiðslu hjá 17 félögum innan Starfsgreinasambandsins um kjarasamning sem skrifað var undir 3. desember. Hann var samþykktur af um 86% þeirra sem greiddu atkvæði, 11% voru á móti og um 3% tóku ekki afstöðu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness fagnar niðurstöðunni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Argentína er heimsmeistari í fótbolta karla í þriðja sinn eftir frækin sigur í vítaspyrnukeppni gegn Frökkum í gær.
Lionel Messi fyrirliði Argentínu lyfi bikarnum íklæddur svokallaðri Bisht (BISÐ)-skikkju sem emírinn af Katar, Tamim bin Hamad Al Thani, færði Messi áður en hann fékk gullhnöttinn afhendan. Í arabalöndum er skikkjan merki um mikla upphefð og auðlegð þess sem henni klæðist. Mörgum þótti þetta skjóta skökku við, segja athæfið táknrænt fyrir mótið í heild sinni, en það hefur verið gagnrýnt harðlega að mótið hafi verið haldið í Katar, í skugga mannréttindabrota og skorts á tjáningarfrelsi.
En sigurinn er Argentínumönnum kærkominn engu að síður. Argentína varð síðast heimsmeistari árið 1986, fyrir liðlega 35 árum, og á hverju heimsmeistaramótinu á fætur öðru hafa vonbrigðin verið mikil hjá liðinu, og ekki síst hjá þjóðinni sem beið og vonaði. En gleði þjóðarinnar er þeim mun meiri nú þegar titillinn er þeirra.
Ólæti og áhugaleysi barna í Noregi virðist hafa aukist mikið eftir faraldurinn. Helmingi fleiri börn en áður enda með ADHD-greiningu og jafnvel lyf. Þetta veldur deilum og það eru fyrst og fremst sálfræðingar og aðrir sérfræðingar sem efast um allar þessar greiningar. Gísli Kristjánsson segir okkur frá umræðunni um þ
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

27 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners