Spegillinn

Klára að bólusetja 60 ára og eldri


Listen Later

Stefnt er að því að búið verði að gefa öllum eldri en 60 ára fyrri Covid-sprautuna í næstu viku. Yfir 26 þúsund verða bólusett í vikunni.
Tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað um 20% síðan kórónuveirufaraldurinn hófst.
Enginn skipverja á fiskiskipinu Þórsnesi SH reyndist með Covid-19. Sýni voru tekin í morgun.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG sem tapaði oddvitasæti sínu í Norðvesturkjördæmi, segir leikreglurnar sem viðhafðar voru í prófkjörinu hvorki hafa verið heiðarlegar né lýðræðislegar.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sendir þúsundir heilbrigðissérfræðinga til Indlands til að hjálpa heimamönnum að takast á við COVID-19 faraldurinn.
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda dróst saman um 2% árið 2019 miðað við árið áður. Miðað við árið 2005 nemur samdrátturinn 8%. Þetta kemur fram í landsskýrslu sem Umhverfisstofnun hefur skilað til Evrópusambandsins og loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Rafn Helgason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir að samdrátturinn 2019 sá mesti frá árinu 2012. Birgir Harðarson talaði við hann.
Það hefur tekist að vinna súrefni á Mars, sem er forsenda þess að senda fólk til starfa á plánetunni í framtíðinni. Og nú hefur lítilli þyrlu verið flogið þar í þrígang. Fíngert ryk veldur aftur á móti vandræðum við jarðskjálftamælingar. Spegillinn forvitnast um vísindastarf á plánetunni rauðu. Ragnhildur Thorlacius talaði við Sigríði Kristjánsdóttur jarðeðlisfræðing og formann Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness.
Í ár bar dag jarðar upp á sumardaginn fyrsta. Joe Biden Bandaríkjaforseti efndi þá til leiðtogafundar um umhverfismál, á netinu auðvitað. Í Bretlandi var líka töluvert gert úr deginum enda eru loftslagsmál orðin ofarlega í hugum Breta. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners