Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn Útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
Það stefnir í að sjálfkjörið verði í tvö æðstu embætti Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins á Grand Hotel í Reykjavík. Höskuldur Kári Schram var í beinni útsendingu frá fundinum.
Sýknudómi þriggja samverkamanna var snúið í 14 ára fangelsisdóm þegar Landsréttur kvað upp dóm í Rauðagerðismálinu í dag. Morðinginn fær tuttugu ára dóm. Alexander Kristjánsson tók saman og talaði við Geir Gestsson, lögmann eins sakborninganna sem segir að leitað verði áfrýjunarleyfis hjá Hæstarétti og telja verður líklegt að fallist verði á það.
Unnur Þorsteinsdóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu. Unnur er áhrifamesta vísindakona Evrópu samkvæmt vefnum Research.com og sú fimmta áhrifamesta í heiminum. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hana.
Neyðarskýlin í Reykjavík ráða ekki við þann mikla fjölda sem nýtir þjónustuna, segir Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, deildarstjóri málaflokks heimilislausra hjá borginni. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hana.
Flest bendir til að Landgræðslan og Skógræktin gangi í eina sæng á næstunni. Árni Bragason Landgræðslustjóri og Þröstur Eysteinsson Skógræktarstjóri ræddu við Bjarna Rúnarsson.
Samskipti barna og unglinga hafa breyst á undanförnum árum með tilkomu samfélagsmiðla og breytingarnar eru örar. Það er auðvelt að missa sjónar á samskiptamynstri unga fólksins ef foreldrar sofna á verðinum og fylgjast ekki með. Kristján Sigurjónsson ræddi samskiptamynstur ungmenna og foreldra við Katrínu Mjöll Halldórsdóttur og Sturlu Brynjólfsson, sálfræðinga hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni í Reykjavík og umsjónarmenn podcastsins Kvíðakastsins.
Búist er við hryllilegri stemningu í Skautahöll Akureyrar í kvöld. þar sem verður boðið upp á hrekkjavöku-skautadiskó. Amanda Guðrún Bjarnadóttir sagði frá og talaði við Svölu Vigfúsdóttur.
Ný og endurbætt útgáfa Bítlaplötunnar Revolver kom út í dag, Revolver (Super Deluxe). Í kassanum eru fjórar breiðskífur, EP plata og hundrað síðna bók um plötuna og tilurð hennar. Ásgeir Tómasson sagði frá.