Spegillinn

Landsmenn taki banninu ekki alvarlega


Listen Later

Yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að fjöldi undanþágubeiðna vegna samkomubanns bendi til þess að hluti landsmanna taki bannið ekki alvarlega. Það boði ekki gott. Sextíu og eitt nýsmit hefur greinst frá því í gær.
Opnað verður fyrir umsóknir um bætur vegna hlutastarfa fyrir hádegi á morgun. Forstjóri Vinnumálstofnunar býst við að minnsta kosti 10 þúsund umsóknum og að þær geti jafnvel orðið allt að 20 þúsund.
Gengi bréfa í Icelandair hækkaði um 5,5% í dag. Það hefur lækkað um rúmlega 60% á einum mánuði.
Sveitarstjóri Norðurþings segir það hafa hrist upp í fólki þegar ástralskur ferðamaður lést á sjúkrahúsinu á Húsavík. Mikil samstaða sé um að verjast kórónuveirunni.
Nokkuð ljóst er að kjaraviðræður Eflingar og sveitarfélaganna munu frestast þar til veirufaraldrinum lýkur. Nýju tilboði Eflingar var hafnað á stuttum sáttafundi í morgun. Verkfalli Eflingar hefur verið frestað en félagið segist reiðubúið að hefja verkfallsaðgerðir á nýjan leik þegar faraldurinn er genginn yfir. Arnar Páll Hauksson talar við Viðar Þorsteinsson og Unni Sverrisdóttur.
Ráðrúm stjórnvalda til að bregðast við vá eins og COVID19 faraldrinum markast meðal annars af trausti. Ef traust almennings á stjórnvöldum er lítið er minni von að fólk fari eftir opinberum boðum og bönnum. Eitt af því sem skapar traust eru einhlít boð og bönn, tilmæli og upplýsingar. Ekki upplýsingar sem vísa í allar áttir. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Myllumerkið #Tradwives hefur átt vaxandi fylgi að fagna á samfélagsmiðlum. Í Bretlandi og Bandaríkjunum hefur sprottið upp hreyfing kvenna sem vill hverfa aftur til óræðs tíma þar sem konur voru heimavinnandi og karlar fyrirvinnur. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners