Útlendingastofnun hefur svipt hóp palestínskra hælisleitenda, sem til stendur að endursenda til Grikklands, húsnæði og tekið af þeim fæðisgreiðslur.
Sergey Lavrov utanríkisráðherra Rússlands kom til landsins síðdegis. Hann fundar í kvöld með utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Alþýðusamband Íslands hvetur landsmenn til að sniðganga flugfélagið Play og krefst þess að gerður verði raunverulegur kjarasamningur við flugfreyjur. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ í dag.
Bandaríkjaforseti þrýstir á stjórnvöld í Ísrael að draga úr árásum á Gaza-svæðið með það að markmiði að koma á vopnhléi. Eldflaugum var skotið á Ísrael frá Líbanon í dag.
Eldgosið við Fagradalsfjall hefur nú staðið yfir í tvo mánuði. Hraunflæðið hefur síðustu vikur verið tvöfalt meira en það var í upphafi.
Það þarf að slaka á fasteignamarkaðinum, sem ber merki ofsa að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Peningastefnunefnd bankans ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25%. Það hækkar vexti á óverðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Haukur Holm fréttamaður ræddi við seðlabankastjóra að afloknum blaðamannafundi í bankanum og spurði af hverju peningastefnunefndin hefði ákveðið að hækka vexti. Haukur Holm talaði við Ásgeir Jónsson seðlabaknastjóra.
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands vonar að á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins á morgun verði tekin ákvörðun um að bannað verði að nota svartolíu á norðurslóðum. Hann bindur vonir við að Ísland stuðli að því að í ráðherraályktun fundarins verði kafli um svartolíubann. Arnar Páll Hauksson ræddi við Árna Finnsson.
Norðmenn ætla ekki að afglæpavæða minni skammta af eiturlyfjum. Erna Solberg forsætisráðherra lenti í minnihluta með frumvarp sitt í Stórþinginu. Miðað var við 5 grömm af sterkari efnum og 15 af hassi en þingmenn sögðu nei. Norski forsætisráðherra ætlar að gera málið að kosningamáli í haust og bæta við auknu frjálsræði í sölu á áfengi. Gísli Kristjánsson sagði frá.