Lögregla ætlar að fara fram á að gæsluvarðhald verði framlengt yfir að minnsta kosti einum af þeim níu sem eru grunaðir um tengsl við morðið í Rauðagerði.
Búast má við vaxandi neyð hjá fólki ef atvinnuleysisbótarétturinn verður ekki lengdur, segir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Fleiri atvinnulausir fái fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum á næstu vikum.
Bretar áforma að slaka smám saman á sóttvörnum vegna COVID-19 þannig að landsmenn geti farið að lifa eðlilegu lífi á ný á síðari hluta júní.
Þrír úr áhöfn togarans Júlíusar Geirmundssonar hafa sagt upp störfum eftir að skipstjórinn á skipinu þegar hópsýking kom upp um borð var ráðinn stýrimaður.
Formaður Samtaka atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum segir að ástand vega í Austur-Barðastrandasýslu komi í veg fyrir að verðmæti séu flutt á markað.
Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurvelli, segir að heilt yfir hafa landamæravarslan gengið vel eftir að reglum var breytt á föstudaginn. Í mjög stuttu máli snúast þær um það að allir sem koma til landsins verða að framvísa svokölluðu PCR- prófi sem má ekki vera eldra en þriggja sólarhringa og sýnir að viðkomandi er ekki smitaður eða neikvæður. Þetta vottorð á að sýna þegar gengið er um borð í flugvél á brottfararstað. Við komuna hingað eru allir skimaðir. Fara svo í 5 daga sóttkví og skimaðir aftur. Þeir sem geta sýnt fram á að þeir hafi myndað mótefni eru lausir allra mála. Arnar Páll Hauksson talar við Sigurgeir Sigmundsson og Sigrúnu Davíðsdóttur.
Blindir sem reiða sig á talgervla í snjallsímum hafa miklar áhyggjur af því að íslensku raddirnar Karl og Dóra verða brátt ekki lengur aðgengilegar í Android-símum. Unnið er að gerð nýs talgervils en hann verður ekki tilbúinn fyrr en eftir eitt til tvö ár. Kristinn Halldór Einarsson og Baldur Snær Sigurðsson, sem báðir eru lögblindir, hafa reitt sig á íslensku raddirnar við skjálestur og við alla notkun snjalltækja. Þegar þær detta út þarf að reiða sig á enskan talgervil. Kristín Sigurðardóttir talar við Kristins Halldór og Baldur Snæ.