Heimskviður

Lesia Vasylenko og breytt heimsmynd eftir Covid-19


Listen Later

Við byrjum Heimskviður þessa vikuna á því að fara til Úkraínu, nánar tiltekið til Kiev. Úkraínska þingkona Lesia Vasylenko hefur verið áberandi í heimspressunni bæði í aðdraganda innrásar Rússa í Úkraínu, og eins eftir. Hún er í stjórnarandstöðu og var áður ötull gagnrýnandi stijandi forseta, Volodymir Zelenskys, en síðustu vikur hefur úkraínskur þingheimur allur fylgt sér á bakvið forsetann. Guðmundur Björn ræddi við Vasylenko í vikunni um framtíðarhorfur í Úkraínu. Mun Úkraína neyðast til þess að gefa Rússum eftir landsvæði? Mun Úkraína bera sigur úr býtum, og geta nágrannarnir Rússar og Úkraínumenn nokkurn tímann lifað í sátt og samlyndi, ef og þegar þessu stríði lýkur?
Í síðari hluta þáttarins fjallar Magnús Geir Eyjólfsson, um breytta heimsmynd eftir Covid-19 faraldurinn. Í upphafi árs glitti í endalokin á Covid-19 faraldrinum og sáu fjármálaráðherrar heimsins í hillingum að varpa fram háum hagvaxtartölum eftir botn síðustu ára. En svo hófst innrás Rússa í Úkraínu og má segja að Pútín hafi ekki eingöngu varpað sprengju á úkraínskar borgir heldur einnig sprengjum á heimshagkerfið. Í stað betri tíðar með blómum í haga róa fjármálaráðherrar heims nú lífróður í baráttu við síhækkandi hrávöruverð, áður óséða verðbólgu og versnandi lífskjör. Rétt eins og faraldurinn á þetta að heita tímabundið ástand en nú eru málsmetandi menn farnir að tala um að áhrif þessara heimssögulegu viðburða verði varanleg. Magnús Geir ræðir við Björn Berg Gunnarsson, hagfræðing,
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

8 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners