Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Fordæmalausir tímar #7
    Sjöundi þáttur sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar.
    Í þessum þáttum höfum við verið við skrásetja hina undarlegu tíma sem við erum að upplifa, það hvernig fólk er að takast á við lífið í miðjum Covid-19 heimsfaraldri. Persónulegar sögur úr faraldrinum, heimsóknir í framlínuna og vangaveltur um framtíðina.
    Í þættinum í dag fáum við innsýn í störf framlínustarfsfólks á Landspítalanum. Við heyrum í hjúkrunarfræðingi, geislafræðingi, lækni og sjúkraliða svo eitthvað sé nefnt. Heyrum um hlífðarbúninga og handþvott, ótta, samstöðu, andlát og bata.
    Og undir lok þáttar verður rætt við Örnu Hauksdóttur, prófessor við læknadeild háskóla íslands, um heilsufarsleg áhrif samfélagslegra áfalla.
    55 min
  • Heimþrá, Stop making sense, Banksy og aktívistinn Jane Fonda
    Nú þegar stór hlut heimsbyggðarinnar neyðist til að halda sig heima er mikilvægt að velta fyrir sér hugtakinu heimili. Undanfarnar vikur hefur Tómas Ævar Ólafsson fjallað um heimili og heimþrá. Að þessu sinni rannsakar hann þá þversagnakenndu tilfinningu að upplifa heimþrá á eigin heimili.
    Á tímum samkomubanns finnur lifandi tónlist sér farveg í streymi á samfélagsmiðlum og efnisveitum. Áður en vef-streymið ruddi sér rúms var nokkuð um það að tónlistarmenn kvikmynduðu tónleika sína og framleiddu sérstakar tónleikakvikmyndir. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um kvikmyndaða tónleika í Lestinni í dag.
    Við rifjum upp feril hinnar óviðjafnanlegu Jane Fonda, ekki sem leikkonu eða líkamsræktarfrömuðar heldur sem aðgerðarsinna.
    Og við fáum fregnir af nýjasta listaverki götulistamannsins Banksy - en eins og aðrir þarf hann að vinna heima um þessar mundir.
    54 min
  • Fordæmalausir tímar #6
    Sjötti þáttur sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar.
    Í þetta sinn beinum við sjónum okkar stöðu listanna í heimsfaraldrinum.
    Við fylgjumst meðal annars með meðlimum Vesturports taka niður sett sem aldrei var notað, þar sem ekki er hægt að halda tveggja metra reglunni við tökur á sjónvarpsþáttum.
    Við heyrum sögur af listamönnum sem misst hafa lífsviðurværið vegna veirunnar.
    Og við ræðum áhrif faraldursins á listsköpun og miðlun við þau Margrét Elísabetu Ólafsdóttur, listfræðing, og Ásgeir Ingólfsson, menningarblaðamann.
    55 min
  • Ísalög, furðugripasafn, Platón og íslenskur sjávarútvegur, klónaður hu
    Sænsk-íslenska spennuþáttaröðin Ísalög er dýrasta sjónvarpsþáttaröð sem framleidd hefur verið á Íslandi. Þættirnir fjalla um átök tengd umfhverfispólitík, olíuvinnslu og hryðjuverk á Grænlandi. Katrín Guðmundsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, veltir fyrir sér skorti á grænlendingum í framleiðsluteyminu.
    Við heimsækjum Júratæknisafnið í Los Angeles, eitt undarlegasta safn Bandaríkjanna. Við rannsökum töfraraunsæi þessa sérstaka furðugripasafns með eigandanum, David Hildebrand Wilson og Þórði Inga Jónssyni
    Halldór Armand flytur sinn vikulega pistil, að þessu sinni veltir hann fyrir 2500 ára gömlu heimspekiriti Ríkinu eftir Platón og setur í samhengi við bótakröfur í íslenskum sjávarútvegi og skilaboð til þingmanna.
    Í desember 2019 hittust Dorrit Moussaief og klónaði hundurinn Samson í fyrsta skipti og var það "ást við fyrstu sýn," að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrum forseta. Dorrit fékk að taka klónið sitt, Samson, með sér heim, en það fékk eigandi fyrsta klónaða hundsins ekki. Sú reyndist nefnilega vera mannræningi.
    50 min
  • Fordæmalausir tímar #5
    Í þessum fimmta þætti sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar, tökum við þátt í samfélagslega ábyrgu stórafmæli, 90 ára afmælisveislu sem breyttist úr fjölmennu partýi í bíltúr um borgina.
    Þrátt fyrir samkomubann hefur grunn- og leikskólum landsins verið haldið opnum undanfarnar vikur. Við heimsækjum leikskólann Kvistaborg og fræðumst um hvernig tekist er á við faraldurinn þar.
    Og Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki, spjallar um tengsl og umhyggju á tímum samskiptafjarlægðar.
    50 min
  • Auður, heimur í handbremsu, Tiger King og spjallþjarkinn Tay
    Fyrir síðustu helgi gaf tónlistarmaðurinn Auður út stuttskífuna Ljós, en útgáfan inniheldur eitt lag í fjórum köflum, hálfgerða svítu að sögn tónlistarmannsins. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í Ljós eftir Auð.
    Í pistli sínum þessa vikuna veltir Halldór Armand fyrir sér heimi í handbremsu og fuglasöngn í háskerpu.
    Heimildarþættirnir Tiger King hafa slegið í gegn á streymisveitunni Netflix að undanförnu. Þættirnir fjalla um dýragarðseigandann Joe Exotic, sem sérhæfir sig í stórum kattardýrum, og illvígar deilur hans við dýraverndunarsinnann Carole Baskin. Gunnar Theodór Eggertsson rýnir í þættina.
    Og við rifjum upp hótun Taylor Swift gegn Microsoft, um málsókn vegna spjallþjarkans Tay sem gerðist nasisti.
    55 min
  • Fordæmalausir tímar #4
    Fjórði þátturinn í sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar. En um þessar mundir helgar Lestin tvo þætti í viku sögum úr faraldrinum.
    Í dag ræðum við um tækni, um það hvernig stjórnvöld og einstaklingar hafa notað tæknina til að berjast gegn veirunni og veltum fyrir okkur hvort langvarandi samkomubann muni breyta tækninotkun almennings til frambúðar. Við ræðum við Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis, og Thamar Melanie Heijstra, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands
    Við sláumst í för með meðlimi smitrakningarteymis Ríkislögreglustjóra og fylgjumst með vinnu þess bakvið tjöldin.
    Og svo heyrum við samtal ungs pars sem hefur verið aðskilið í þrjár vikur vegna veirunnar og heldur sambandinu gangandi í gegnum fjarskiptabúnað.
    55 min
  • Bill Withers, Hvítrússneska tónlistarsenan, heimþrá og kynsjúkdómar
    Við minnumst sálarsöngvarans Bill Withers sem lést í síðustu viku, 81 árs að aldri.
    Jónas Þór Guðmundsson flytur okkur tónlistarpistil um tónlistarsenuna í Hvítarússlandi, sem er einstaklega gróskumikil um þesasr undir.
    Nú þegar stór hlut heimsbyggðarinnar neyðist til að halda sig heima er mikilvægt að velta fyrir sér hugtakinu heimili. Tómas Ævar Ólafsson heldur áfram að fjalla um heimili og heimþrá og mikilvægi þess að eiga sér samastað . Hann ræðir við Elínu Jónasdóttur, sálfræðing.
    Við spjöllum um kynsjúkdóma í Reykjavík fyrr á tímum og sagnfræðilegar rannsóknir á kynheilbrigði við Þorstein Vilhjálmsson, fornfræðing.
    55 min
  • Fordæmalausir tímar #3
    Ást, stríð og einmanaleiki kemur við sögu í þættinum í dag þar sem samskipti eru rauði þráðurinn.
    Við heimsækjum hjálparsíma Rauða krossins, en aukið álag er á starfsfólk vinalínunnar á tímum fordæmalausrar innilokunar og einangrunar.
    Við kynnumst frumlegum leiðum sem eldri hjón hafa fundið til að tjá ást sína í sóttkví.
    Og við ræðum um orðræðu stjórnmálanna á tímum faraldurs við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði.
    57 min
  • Britney, kaffi, American Factory, One Child Nation og göngutúr í kví
    Halldór Armand flytur pistil úr sóttkví. Hann segir frá einum af sínum daglegu sóttkvíargöngutúrum eftir Sæbrautinni, en þar varð hann vitni að handahreyfingu sem reif gat í tjald tímans.
    Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í tvær heimildarmyndir sem varpa ljósi á hið vaxandi stórveldi á sviði stjórn- og efnahagsmála, Kína. Þetta eru American Factory og One Child Nation.
    Við kynnum okkur sögu kaffidrykkju í heiminum og hér á Íslandi. Rætt er við Már Jónsson, sagnfræðing.
    Og við segjum frá persónulegri baráttu poppsöngkonunnar Britney Spears. Hún var svipt sjálfræðinu eftir ítrekuð taugaáföll fyrir rúmum áratug og hefur ekki enn endurheimt það aftur.
    55 min